Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Page 8

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Page 8
6 MÚLAÞING o.s.frv. Þykir þó báðum slíkt leiðinlegt og undirrituðum fram úr öllu hófi. Sögufélag- ið svonefnda kafnaði alveg í útgáfustússinu þótt undarlegt kunni að virðast. Það hefði þó átt að tryggja dreifmgu vinnunnar. Eg nenni ekki að gá að formönnum þess, en get þó getið þess fyrir kurteisissakir að ég er í þeirra hópi og kunni ekki eða nennti ekki að skipuleggja félagslegt starf fremur en hinir. Þetta ,,félag“ hefur nú sungið sitt síðasta vers. Það var aldrei annað en nafn- ið tómt. Aftur á móti hafa einstaklingar lagt Múlaþingi gott lið jafnan, t.d. Björn Sveinsson, Birgir Stefánsson og Auðun Einarsson auk margra umboðsmanna sem annast hafa sölu víðs vegar um Austurland og í Reykjavík. Ekki má heldur gleyma sýslufélögunum (Múla-) sem jafnan hafa styrkt útgáfuna og hin sfðari ár mjög rausn- arlega. Það eru sýslufundir sem ákveða slíkar styrkveitingar, og ég hygg óhætt að segja að Helgi Gíslason hafi átt drjúgan þátt í hækkun þessara styrkja, því að það var Norður-Múlasýsla sem reið á vaðið þegar sýslustyrkirnir hækkuðu. Sunnmýl- ingar létu þó ekki sitt eftir liggja lengi, buðust vorið 1980 til að taka útgáfuna að sér, kusu tvo menn til að sjá um samninga um yfirtökuna, þá Boga Nilsson sýslumann og Jón Kristjánsson sýslunefndarmann Egilsstaðahrepps. Samningar tókust greið- lega því að Sögufélagið fannst ekki á jarð- ríki, og afhentum við Sigurður því sýslunni gripinn (ritið) en með þeirri ósk þó að Norður-Múlasýslu og kaupstöðunum yrði boðin aðild að útgáfunni. Vonum við að hér eftir verði þetta rit þeirra rit og megi dafna í skjóli fimm lögsagnarumdæma hins forna Múlaþings hafið yfir hreppakrit og héraðs- ríg. — Sögufélagið er dáið, en á berangri þess hefur þó uppvaxið þessi eina jurt sem nú skal gróðursetjast í feitari jörð. Við þessi tímamót, tíu hefta áfangann á 15 árum, og við þá kjölfestu sem lögsagn- arumdæmin munu væntanlega veita ritinu sakar ekki að líta sem snöggvast um öxl og gera á því smáathugun. Alls hafa skrifað í þessi tíu hefti 86 höfundar. Flestir eru þeir bornir og barn- fæddir Austfirðingar, sumir heimabúandi, aðrir burtfluttir. Auk þess nokkrir sem hér hafa átt heima og starfað mislengi. Mjög er það að sjálfsögðu mismikið sem þessir 86 hafa ritað, Benedikt frá Hofteigi mest, rúmar 200 bls., en á hinn bóginn um 13 manns 1-2 bls. Yfir 50 bls. hafa átta höfundar skrifað. Þeir eru auk Benedikts: Armann Halldórsson um 160, Agnar Hall- grímsson um 130, Guðmundur Eyjólfsson um 130 líka, síra Agúst Sigurðsson um 100, Sigurður O. Pálsson um 70 og þeir Sigurður Vilhjálmsson og Sigurður Krist- insson 50-60 bls. hvor. Af þessum 86 góðvinum Múlaþings eru nú að ég held 44 á lífi. 30 þeirra hafa látist á þessum tíma frá 1966-1980, en eftir 12, sem dánir voru byrjunarárið, hefur birst efni í ritinu. Hér eru þeir eigi meðtaldir sem átt hafa efni í greinum sem aðrir hafa birt í sínum viðfangsefnum, t.d. austfirsku alþýðuskáldin sem Eiríkur Sigurðsson rit- aði um og birti kveðskap eftir. Umsjónar- menn, lesendur og allir unnendur Múla- þings mega minnast hinna látnu með þakk- læti í huga. Þakklátssemin er af ritsins hálfu einu ritlaunin goldin þeim. í fyrstu mun það hafa flögrað að ýmsum að í þessu riti skyldu birtast verk Austfirð- inga utan sögusviðs, kveðskapur, smásög- ur og ef til vill fleira, en þó má svo heita að allt hafi það orðið byggðarsögulegs efnis beint og óbeint. Byggðarsaga getur að sjálfsögðu teygst út á skáldgreinar í bundnu og óbundnu máli, kvæðum, smá- sögum og þjóðsögum. Sem betur fór varð þó ekki mikið úr þeim áformum (ef áform hafa verið) og ritið gert að ruslakistu fyrir alls konar hugverk austfirskra manna, heldur hefur það átt að heita helgað byggð- arsögu. Ritstjórn hefur verið algert hjáverkastarf hjá okkur Sigurði, troðið inn í glufur í kennslustreði aðallega, en það verður þó að segja kennslustörfum til lofs að þeim
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.