Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Side 57
MÚLAÞING
55
(CCCC) ófríð, brún innar um kirkju þvert, sacrarium mundlaug,
járnstikur tvær fyrir líkneskjum og tvær á altari. Porcio ecclesie 15 álnir
á bverju ári um 16 ár.
I máldaga Möðrudalskirkju8 segir m. a.: ,,Item gaf Olafur Jónsson kú
með þeim skilmála, að þar skal gefast af pund matar eður eyrir vaðmáls
að Þorláksmessu fyrir jól árlega fátækum mönnum.“ Enn tel eg vera
hér á ferðinni Olaf bónda á Bessastöðum, og er ljóst að hér hefur verið
maður í stórbænda tölu.
Loks vil eg vitna í máldaga Berufjarðarkirkju,9 þar segir: ,,Item lagði
síra Sturli til nýtt altarisklæði og textaspjald. Porcio ecclesie næstu 5 ár
síðan Ólafur bjó hálfur 18. eyrir, en stendur til reiknings um 4 ár meðan
Jón Sturluson bjó sem reiknað var 100 utan því minna ef hann hefði
bætt að kirkjunni.“
Eg tel freistandi að ætla að enn sé um Olaf bónda á Bessastöðum að
ræða, sem verið hafi sonur þess Jóns Sturlusonar sem hér er getið, og
síra Sturli sé faðir þessa Jóns og sá sami og síra Sturli Ormsson sem
prestur var á Valþjófsstað um nokkurt skeið seinni hluta 14. aldar, og
því sé sú gjöf, sem máldagi Valþjófsstaðar tilgreinir að Olafur hafi gefið
eftir föður sinn, gefin eftir Jón Sturluson, þótt hins vegar ýmislegt geti
bent til að átt sé við síra Jón Ólafsson.
Þær tilvitnanir sem hér fóru á undan, eru þær einu sem telja má
öruggt að eigi við Olaf bónda á Bessastöðum. Eg tel hins vegar að ekki
sé allt upptalið. í íslensku fornbréfasafni,10 er bréf dagsett 3. júlí 1409
gert á Alþingi. Er þar um að ræða úrskurð Odds lögmanns Þórðarsonar
um flutning á konungsgóssi til Noregs með kaupskipum frá Islandi.
Undir þetta bréf rita nafn sitt bæði íslenskir valdsmenn og kaupmenn
norskir, og að öllum líkindum einnig íslenskir. í hópi þessara manna er
Olafur Jónsson. Þann 7. júlí 1409 er gert í Þerney bréP1 um svipað
efni. Einnig er þar Ólafur Jónsson meðal þeirra er undir bréfið skrifa og
er þar í hópi Islendinga sem eg tel að haft hafi afskipti af kaupmennsku
og útgerð. Hér tel eg að enn sé á ferðinni bóndinn á Bessastöðum í
Fljótsdal sem, auk þess að reka stórbú á ýmsum vildisjörðum á Héraði,
hafi átt kaupskip í förum milli landa og verslað í Gautavík við Berufjörð
og ef til vill gert út á hákarl eins og sagt er að annar ríkismaður hafi gert
seinna á 15. öldinni.
Síðast kemur Ólafur Jónsson við heimildir12 sem einn íslenskra
höfðingja sem ritar undir hyllingarbréf Islendinga til Eiríks af Pommern
1. júlí 1419. Ólafur er sá áttundi í röðinni af 24 mönnum sem undir
bréfið skrifa, og ef miðað er við þá reglu sem á þeim tíma tíðkaðist, að