Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 34
Múlaþing
ið að taka til nesti á öllum heimilum. Lagt
var af stað kl. 4 aðfaranótt sunnudags. Það
er 100 km leið frá Möðrudal inn að Bráar-
jökli, og seinfarin. I þessari ferð voru auk
mín og bílstjóranna Vilhjálmur Jónsson,
Gunnlaugur Jónsson, Armann Guðlaugs-
son, allir frá Möðrudal, og Jón Jlaraldsson,
sem staddur var í Möðrudal, en var heimil-
isfastur í Reykjavík. Þá var ekki ekin sama
leið og nú er farin, heldur slóð sem lá nokk-
uð neðan við bæ í Möðrudal. Það var farið
yfir Bæjarána, inn að Húshólsvatni og það-
an með ýmsum krókum inn að Hvanná.
Síðan kemur þessi slóð inn á veginn sem nú
er notaður. Þessi slóð varð til þegar bílar frá
Akureyri og Austfjörðum óku vikri úr Am-
ardal. Þessir flutningar voru miklir á árun-
um 1946-1950.
Var nú farið inn yfir Grjótin í Arnardal,
sem eru 30 km, inn austan Dyngjuháls, yfir
Þríhymingsá og Álftadalsá. Þar skiptast
leiðir, - frá gömlu slóðinni er nú kominn
hringvegur, vestur sunnan syðra Arnardals-
fjalls, ámar Kreppa og Jökulsá á Fjöllum
brúaðar og opin leið í Herðubreiðarlindar,
allt norður að þjóðveg vestan Jökulsár.
Við fórum gömlu slóðina vestan við
Álftadal og austan Fagradals, síðan eftir
söndum þar til komið var að leiðarenda inn-
an við hið merkta lendingarsvæði. Þar inn-
frá sukku jeppamir víða í sandbleytu. Fljótt
komumst við að því að eina leiðin til að ná
bílunum upp, var að troða sandinn í kring-
um hjólin, - þá lyftust bílamir upp.
Við vorum lítt kunnugir þama innfrá, en
höfðum fengið góða leiðsögn frá Jóni Stef-
ánssyni, bónda í Möðrudal, sem var kunn-
ugur á þessum slóðum eftir rnargar ferðir á
hestum með mönnum eins og Helga Valtýs-
syni, Eðvarð Sigurgeirssyni og fleirum sem
á árum áður höfðu fylgst með lifnaðarhátt-
um hreindýra í Kringilsárrana.Við leituðum
inn að Kverká og með jökulröndinni austur
að Kringilsá, einnig mjög vel í nálægð lend-
ingarstaðarins, en hann er vestan Sauðár.
Fórum við allt austur til Sauðafells, sem er
á vesturbakka Jökulsár á Brú, nokkuð norð-
ar en Kringilsá rennur í hana. Á þessu
svæði urðum við einskis varir.
Þama rákumst við þó á eitt tjald og hitt-
um íbúann, en það var þýskur prófessor,
fröken Tothman. Hún var þarna við ein-
hverjar jöklarannsóknir og hafði verið það
líka nokkrum ámm áður, þannig að við vor-
um lítillega kunnugir henni.
Nú höfðum við lokið þeirri leit sem við
höfðum verið beðnir um, svo við héldum
heimleiðis og heim var komið eftir rösklega
sólarhrings fjarveru.
Ekki höfðum við verið lengi heima er
okkur bárust tilmæli frá Flugumferðar-
stjórninni í Reykjavík að hefja nýja leit á
sjálfum Vatnajökli og í Kverkfjöllum. Skil-
yrt var að við fæmm ekki færri en þrír-fjór-
ir af öryggisástæðum. Við ákváðum að fara
fjórir og reiknuðum með að vera tvo sólar-
hringa í þessari för. Lögðum við af stað frá
Möðrudal kl. 4 aðfaramótt mánudags. I för
með mér voru nú Stefán Helgason, Ármann
Guðlaugsson og Jón Haraldsson. Vorum
við enn á Willysjeppanum frá Hofi í Vopna-
firði, en Þórhallur Jónsson fylgdi okkur á
jeppa sínum inn undir jökul, þar sem við nú
höfðum meiri farangur meðferðis, en komst
fyrir með góðu móti í einum jeppa ásamt
okkur sjálfum.
Við fórum sömu leið og í fyrri ferðinni.
Þórhallur skildi við okkur innan við lend-
ingarstaðinn og tróðum við þá öllum búnað-
inurn sem hann hafði verið með í bílinn hjá
okkur. Hann fór í tjaldið að sækja Fröken
Tothman, sem hafði þá lokið athugunum
sínum.
Við héldum nú nokkuð lengra á jeppan-
um, en skildum við hann talsvert norðan við
jökulinn. Síðan fengum við okkur matar-
32