Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Síða 83
Eftirhreytur um Freyfaxahamar
finna hamarinn í klettagili framarlega í
dalnum að vestanverðu, þótt þeir hafi þá
orðið að gera ráð fyrir, að bæði landið
og sagan hafi gengið úr skorðum frá
því, sem var, til þess að fá allt til að
koma heim. Klettagil þetta heitir nú
Faxagil, en enginn veit hve gamalt nafn-
ið er. Eg skoðaði gilið sumarið 1939 og
gekk úr skugga um að staðhættir eru
gerólíkir því, sem ráða má af sögunni,
og er algerfjarstœða að leita hamarsins
þar (JJ 1950, Lll).
Örnefnið Freyfaxahamar telur Jón þó að
hafi hugsanlega verið til „þótt nú sé það
týnt“ eins og hann kemst að orði. Jón Jó-
hannesson segir enga fjarstæðu að ímynda
sér að upp úr því ömefni hafi höfundur sög-
unnar spunnið sögnina um Freyfaxa. Hann
segir í því sambandi:
Hitt er annað mál, að örnefnið Frey-
faxahamar hefur borið vitni um ein-
hverja Freysdýrkun á þessum slóðum, ef
til vill í œtt Hrafnkels, eins og örnefnið
Freyshólar og Freysnes við Lagarfljót,
skammtfrá bústöðum sonarsona Hrafn-
kels (JJ 1950, L).
Walter Beatke gaf Hrafnkels sögu Freys-
goða út árið 1952. í inngangi fjallar hann
um örnefni sögunnar, m.a. Freyfaxahamar
og segir að Freyfaxahamarsnafnið 5-6 kíló-
metrum innan við Aðalból eigi ugglaust ræt-
ur að rekja til sögunnar (WB 1952, 15).
Sjálfur fékk ég snemma áhuga á hinu
torleysta viðfangsefni um Freyfaxahamar,
enda var allt sem sögunni viðkom mikið
rætt á æskuheimili mínu í Hrafnkelsdalnum
eftir 1940. Eg minnist þess frá þeim árum,
að rætt var um Freyfaxahamar í klettagili
nálægt Faxahúsum og stundum var bent á
klett við Hrafnkelu nokkru innar í dalnum.
Það var svo ekki fyrr en sumarið 1974 að ég
gaf þessu efni sérstakan gaum, en þá flutti
ég í útvarpi þrjú erindi um Hrafnkels sögu.
Eitt þeirra bar yfirskriftina: Freyfaxahamar
og goðahús Hrafnkels. Þar sagði ég um þann
kafla sögunnar sem ég birti hér framar:
Hér eru lykilorð ... þessi: Þá váru hross-
in heim leidd. ... Heim merkir aðeins
heim að einhverjum húsum og þau hús
sem hér um ræðir gátu staðið nánast
hvar sem var í landi Aðalbóls. Nœrtœk-
ast vœri ef til vill að staðsetja ... þar í
grennd, sem Freyfaxi gekk ... ekki fjarri
... þar sem nú heitir Faxahús.
... I Aðalbólslandi er ... aðeins einn
hamar ígrennd við Hrafnkelu ... skammt
frá Faxahúsum (JHA 1974, 10).
Þegar ég dró þá ályktun sem hér birtist
voru augu mín ekki nægilega opin fyrir því
sem segir þó berum orðum í sögunni, að
Þjóstarssynir voru staddir heima á Aðalbóli
er þeir létu senda eftir Freyfaxa og liði hans.
Mér virðist nú við nánari lestur á sögunni
að þessi fyrri ályktun mín geti engan veginn
staðist. Ekki veit ég hvort ég varð fyrstur til
að setja fram þá hugmynd að heim merkti
hugsanlega heim að einhverjum húsum í
Hrafnkelsdal, en hafi svo verið hlýt ég því
að biðjast velvirðingar á því að hafa komið
þessum erroribus á gang eða ruglingi á ról
eins og það heitir á íslensku.
Moldarbarð verður að hamri
I 19. árgangi Saga-Book sem kom út
1975-76 birti O.D. Macrae-Gibson ritgerð
um staðfræði Hrafnkels sögu þar sem hann
fjallar í alllöngu máli um Freyfaxahamar.
Macrae-Gibson hafði ferðast um söguslóð-
imar árið 1973 og viðleitni hans beindist
einkum að því að tengja saman Hrossageil-
81