Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Side 111

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Side 111
Bernsku- og æskuár í Borgarfirði voru góðir söng- og leikkraftar, sem reglu- lega gaman var að hlusta á og sjá. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar Skugga-Sveinn var leikinn hér í fyrsta sinn. Það mun hafa verið 1917. Skugga-Svein lék Þorsteinn M. Jónsson, Ketil Guðmund- ur Einarsson, Sigurð í Dal Sigurður Hann- esson, Astu Sigurjóna Jakobsdóttir, Harald Hallsteinn Sigurðsson, Ögmund Sveinn Gíslason Bakka, Lárensíus sýslumann Ólaf- ur Gíslason verslunarstjóri, Jón sterka Steinn Magnússon, Grasa-Guddu Ingi T. Lárusson, Gvend smala Guðrún Hannes- dóttir, skólapilta Björgvin Guðmundsson og Jón Bjömsson Steinholti, Möngu Anna G. Guðmundsdóttir, Geir og Grana Gunnsteinn Jónsson á Bólum og Guðmundur Magnús- son frá Kjólsvík, Galdra-Héðin Ingi T. Lárusson, sjómann undan fjöllum Steinn Magnússon. Allir leikendur þóttu skila hlutverkum sínum prýðisvel, sérstaklega voru Skugga-Sveinn, Ketill, Ögmundur, sýslumaður og Asta vel leikin. Ingi T. Lárusson tónskáld var starfsmaður hjá Eyr- arversluninni í tvö ár hjá Ólafi Gíslasyni verslunarstjóra. Ingi var glæsilegur maður og hrókur alls fagnaðar í söng- og skemmt- analífi. Hann kenndi hér söng og spilaði í kirkjunni árin sem hann var hér á Borgar- firði. Á árunum 1907-1925 var fólk í hreppn- um eitthvað á fimmta hundrað heimilisfast og hefur aldrei orðið fleira hvorki fyrr né síðar. Á þessum árum var margt fólk á Bakkagerðisbyggðinni og allar jarðir í Vík- unum í byggð nema Álftavík. Þá var tví- býli í Brúnavík og Breiðuvík og fjórbýli á Húsavíkurtorfunni. Setberg fór í eyði 1908. Um 1918 fór að fækka og 1926 var íbúatalið komið niður fyrir 400. Höfuðor- sök þess var hafnleysið sem stóð þorpinu fyrir þrifum. Lyrsta skeið vélbátatímans fór illa. Nokkrir bátar voru þá keyptir, en fórust allir nema einn. Á þriðja áratugnum komu trillumar og þær reyndust betur því að hægt var að bjarga þeim á land þegar brimaði. Þegar fór að fækka fluttust margar stór- ar fjölskyldur suður á firði, ein norður að Skálum á Langanesi, önnur á Vopnafjörð, sú þriðja upp í Lljótsdal. Það mátti segja að fólkið færi í allar áttir. Flest var þetta fólk fætt og uppalið í Borgarfirði. Eg man eftir fjórum eða fimm fjölskyldum sem fluttu burtu 1919. Það ár var þó afkoma fólks frekar góð, allar landbúnaðarafurðir á topp- verði frá stríðsárunum. Þá var meðalverð á sláturlambi 50 kr. og þótti gott verð fyrir kropp og gæru inn í verslun. Næsta haust féll verðið niður í 25 kr. Ár frá ári hélt verðið áfram að lækka á öllu búfé, um 1936 var lambið komið niður í 8-9 kr. Þá vora svokölluð kreppuár sem urðu mörgum bændum þung í skauti til að hafa í sig og á og sjá fyrir fjölskyldunr sínum. Sama var að segja um fiskverðið. En árferðið var gott þessi ár. Eftir 1924 kom ekki harður vetur fyrr en 1950 og ekki hafís, mörg vorin góð, en sum í lakara lagi, en lambahöld jafnan sænrileg. Heyþrol urðu ekki nema hjá einstaka manni þegar illa voraði. Þá leituðu þeir til bænda sem voru aflögufærir. Mig minnir að fyrst væru hey flutt inn í hreppinn 1951 eftir eitthvert mesta óþurrkasumar sem eg man eftir. Þrjú verstu sumur sem eg man eftir voru 1903, 1934 og 1950. Þetta voru hræðileg rign- ingasumur, en góð spretta bæði 1934 og 1950 og mikið þá sett í vothey af túnum þótt ekki væru til nema torfgryfjur 1934. Margir bændur byrjuðu votheysgerð fyrir 1920 og gafst það vel. (Annann Halldórsson bjó til prentunar) 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.