Þjóðmál - 01.09.2014, Page 35

Þjóðmál - 01.09.2014, Page 35
34 Þjóðmál haust 2014 þögn þeirra, sem ekki fá að mæla, sem vísbendingu . Hann tekur sér ekki ætíð stöðu með valdsmönnunum inni í höllinni og horfir niður (þótt það sjónarhorn sé vissulega fróðlegt), heldur einnig með lýðnum úti á torginu og horfir upp og í kringum sig . Hann segir ekki síður frá fórnarlömbum en böðlum . Ég get ekki orðað þetta betur en franski sagnfræð ing- ur inn François-René de Chateaubriand í Minningum sínum: Við hina djúpu þögn undirgefninnar, þar sem ekkert heyrist nema glamrið í hlekkj- um þrælsins og hvísl uppljóstrarans, allir skjálfa af ótta við harðstjórann og sami háski er að vera í náðinni hjá honum og vekja óánægju hans, birtist sagnfræðing- ur inn, sem tryggja á makleg málagjöld fyrir hönd alþýðu manna . Neró dafnaði til einskis, því að Tacitus hafði þegar fæðst í Rómaveldi .4 Þetta merkir ekki, að sagnfræðingurinn eigi jafnan að setjast í dómarasæti . En hann má ekki truflast af seiði valdsins og afsaka hið óafsakanlega . Ef Maó Zedong var illmenni og níðingur, þá var hann það eftir sem áður, þótt hann gegndi háu embætti og legði undir Kína ýmis stór lönd . Síðan verður að hnykkja á því, að rit þeirra Jungs Changs og Jons Hallidays um Maó er feikilegt afrek, þótt vitaskuld sé það ekki gallalaust fremur en önnur mannanna verk . Chang fæddist og ólst upp í Kína, svo að hún hafði aðgang að kínverskum heimildum, og Halliday talar ekki aðeins ensku, heldur líka rússnesku, svo að hann hafði aðgang að heimildum á rússnesku og öðrum slavneskum málum . Bók þeirra var ekki skrifuð upp úr verkum annarra, þótt þau styddust við aragrúa prentaðra rita, heldur reyndu þau eftir megni að skoða frumheimildir í Kína, Rússlandi og víðar . Fram kemur í bókarlok, að þau stunduðu rann sóknir á skjalasöfnum í Albaníu, Banda ríkjunum, Bretlandi, Búlgaríu, Ítalíu, Japan, Rússlandi, Sviss, Tævan og Þýska- landi að Kína sjálfu ógleymdu . Tilvísanir aftanmáls eru 73 blaðsíður í íslensku þýðingunni, kínversk heimildaskrá 24 blaðsíður og skrá um heimildir á öðrum málum 21 blaðsíða . Ekki er minna um það vert, að þau Chang og Halliday töluðu við um 350–400 manns, þótt þau mættu ekki nafngreina alla heimildarmenn sína í Kína . Á meðal viðmælenda þeirra voru margir vandamenn Maós, vinir og samverka- menn, fjölskyldur þeirra, nokkrir af æðstu mönn um Kína í tíð Maós og ýmsir sjónar- vottar að sögulegum viðburðum, til dæmis túlkar og lífverðir, kínverskir sagnfræðingar, sem fengið höfðu að kanna heimildir, sem öðrum voru lokaðar, og menn í öðrum lönd um, sem þekktu Maó beint eða óbeint, þar á meðal Bandaríkjaforsetarnir George H . Bush og Gerald Ford, Henry Kissinger, stjórn málafræðingur og öryggismálaráð gjafi, og nokkrir fyrrverandi yfirmenn banda- rísku leyniþjónustunnar . Úr öllu þessu efni settu þau Chang og Halliday saman mjög V ið hina djúpu þögn undirgefninnar, þar sem ekkert heyrist nema glamrið í hlekkj um þrælsins og hvísl uppljóstrarans, allir skjálfa af ótta við harðstjórann og sami háski er að vera í náðinni hjá honum og vekja óánægju hans, birtist sagnfræðing ur inn, sem tryggja á makleg málagjöld fyrir hönd alþýðu manna .“

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.