Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Page 17
kirkjunnar á Kirkjuþingi haustið 1997.13 Kirkjuþing samþykkti að unnið
yrði áfram að þessum málum og fullmótaðar reglur lagðar fram fyrir þingið
ári síðar.
Þó að svonefnt biskupsmál ætti mikinn þátt í því að íslenska þjóð-
kirkjan samþykkti starfsreglur um meðferð kynferðisbrotamála innan sinna
vébanda, þá má ekki gleyma þeirri hvatningu sem kom frá hinu alþjóðlega
kirkjusamfélagi. Þannig hafði lútherska kirkjan í Bandaríkjunum sett sér
svona reglur árið 1992, An ELCA Strategy for Responding to Sexual Abuse
in the Church}A Árið 1996 samþykkti norski biskupafundurinn starfsreglur
um meðferð kynferðisbrota, Retningslinjer og prosedyre for behandling av
saker der det rettes anklage mot vigslet kirkelige medarbeider om seksuelt
misbruk og/eller grensoverskridende seksuell adferd.15 Fleiri lútherskar kirkjur
fylgdu í kjölfarið. Á Heimsþingi Lútherska heimssambandsins í Hong
Kong sumarið 1997 var fjallað um ofbeldi gegn konum, inni á heimilum
og úti í samfélaginu, en einnig á kirkjulegum vettvangi. Þar var hvatt til
þess að kirkjur viðurkenndu það ofbeldi sem unnið væri í skjóli þeirra og
að gripið yrði til aðgerða til að gera kirkjur að öruggum stað fyrir þolendur
ofbeldis. Þá var lögð áhersla á nauðsynlega fræðslu innan kirknasamfélaga
um afleiðingar kynferðislegs ofbeldis.16
Starfshópur til að fjalla um meðferð kynferðisbrota
í tillögu áhugahóps kvenna um meðferð kynferðisbrota innan kirkjunnar
var lagt til að skipuð yrði þriggja manna ráðgjafanefnd „til að taka á málum
sem varða kynferðislega áreitni og ofbeldi“ og mótaði starf sitt á grundvelli
starfsreglna norsku kirkjunnar. I ráðgjafanefndinni skyldu sitja lögfræðingur,
sálfræðingur eða geðlæknir og guðfræðingur, allt einstaklingar með sérþekk-
ingu á þessum málum.
13 Þessi tillaga var gefin út í litlum bæklingi fyrir fund Kirkjuþings, undir yfirskriftinni Kynferðisleg
brot innan kirkjunnar. Tillaga um málsmeðferð. Hér er um að ræða jafnréttisnefnd sem var
skipuð af biskupi gagngert til að skrifa drög að jafnréttisáætlun fyrir kirkjuna. Jafnréttisáætlun
var síðan samþykkt á Kirkjuþingi haustið 1998 og tók gildi 1. janúar 1999 og á sama tíma tók
til starfa fyrsta jafnréttisnefnd kirkjunnar sem hefur það verkefni að fylgja eftir framkvæmd
jafnréttisáætlunarinnar.
14 http://www.elca.org/Growing-In-Faith/Vocation/Rostered-Leadership/Leadership-Support/Safe-
Place/Our-Church.aspx
15 Utredning fra et utvalg nedsatt av Bispemötet. Oslo, 1996.
16 http://www.lutheranworld.org/Special_Events/LWF-1997-Reports.html
15