Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 146
Það kom í hlut eins af kirkjunnar mönnum að marka braut nútímalaga.
Það gerði Tómas Aquinas með bók sinni Summa Theologia.57 Þetta er
gríðarlega stórt frumsamið verk og áhrif þess meiri en upp verður talið.
Það sem hér kemur við sögu er aðallega kaflinn um lög.58 Tómas skrifar
um hina ýmsu flokka laga og skilgreinir þá eftir eðli og uppruna. Það er
ekki lagabókstafurinn sjálfur sem Tómas er upptekinn af, heldur siðfræði
og tilgangur laganna. I þessari umfjöllun vitnar hann í öll þau rit sem hér
hafa upp verið talin, auk þess til grískra heimspekinga og fræðimanna síns
samtíma. Hann notar líka glósurnar sem áður er getið.
Tómas vinnur það afrek, að hann sameinar í útskýringum sínum guðfræði
Biblíunnar og þær kenningar Aristótelesar, sem á annað borð samrýmast
kristni, í eina heild.59 Margir fremstu lögspekingar samtímans hafa rann-
sakað rit Tómasar og hann er álitinn einn helsti upphafsmaður nútíma-
réttarheimspeki. Tómas lifði ekki að ljúka verki sínu né sjá árangur siðfræði
sinnar. Á hans tímum og langt fram eftir öldum óðu forréttindastéttir aðals
og klerka uppi og hlýddu nánast engum lögum. Þetta vakti auðvitað óbeit á
spillingu og löglausu framferði þeirra, og varð fyrsta og fremsta kveikjan að
mótmælendahreyfingum Lúthers og Kalvíns gegn páfastólnum á sextándu
öld. Breska biskupakirkjan er stofnuð um svipað leyti.
Kirkjuvaid og ríkisvald
Eins og áður segir leiddi upplausnin á síðfornöld til átaka milli kirkjunnar
og veraldlegra valdhafa. Á velmektardögum kaþólsku kirkjunnar í Vestur-
Evrópu reynir hún hvað hún getur að efla Hið heilaga rómverska keisara-
dæmi sem sinn veraldlega arm. Þegar best gengur, er kirkjan miklu nær því
að fara með ríkisvaldið heldur en konungarnir.
En siðbótin verður mikil blóðtaka fyrir kaþólsku kirkjuna. I kjölfar
hennar setja tveir menn, þeir Marteinn Lúther og heimspekingurinn Jean
Aristótelesi, Euklíð og fleiri fræðimönnum eftir nær þúsund ár. Þetta er dálítið furðulegt þegar
horft er til að rómverskir fræðimenn eins og t.d. Cicero héldu kenningum Aristotelesar mjög
á loff.
57 Summa Theologica: Christian Classics Ethereal Library, Calvin College, 3201 Burton St. SE Grand
Rapids, MI 49546 USA http://www.ccel.org/ccel/aquinas/summa.html
58 Tómas af Aquino: Um Lög-, Lærdómsrit bókmenntafélagsins; Hið íslenska bókmenntafélag 2004;
íslensk þýðing Þórður Kristinsson með inngangi eftir Garðar Gíslason
59 Það er einkum afstaða Aristótelesar til kvenna sem fer fyrir brjóstið á mörgum í dag. En það er
ýmislegt fleira sem ekki skal tíundað frekar, en minna má á að helsta starf Aristótelesar var að vera
herskólastjóri Filippusar II Makedóníukonungs og bar sem slíkum skylda til að ala herforingja
hans upp í trú á rétt hins sterka og hefndarskyldu.
144