Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Blaðsíða 74
einnig að hafa áhrif á hvernig við nálgumst trúarbragðafræðslu skólans
þar sem bakgrunnur og reynsla nemenda í fjölskyldu og vinahópi hlýtur
að skipta máli í kennslunni í samspili við frásagnir, kenningar og hefðir
einstakra trúarbragða.
Útdráttur
f greininni er fjallað um nokkrar niðurstöður í rannsókn sem nú stendur
yfir á lífsviðhorfi og gildismati ungs fólks í fjölmenningarsamfélagi. Um
er að ræða þriggja ára (2011-2013) þverfaglega rannsókn með þátttöku
fræðimanna í trúaruppeldisfræði, fjölmenningarfræði, uppeldisfræði og
hugmyndasögu. Athyglinni er sérstaklega beint að megindlegum hluta
rannsóknarinnar og þeim þætti hennar sem fjallar um trú og trúarbrögð.
Ungt fólk 18 ára og eldra, samtals 904 í sjö framhaldskólum, svöruðu
spurningalista með 77 fullyrðingum sem það átti að taka afstöðu til.
Fræðileg umgjörð rannsóknarinnar eru hugtök á borð við tilvistartúlkun og
tilvistarspuringar, fjölhyggju og merkingarkreppu og kenningar um fljótandi
samfélagsástand og um veraldarvæðingu og af-veraldarvæðingu samfélagsins.
Enn fremur er vísað til rannsókna og umræðu um trúarafstöðu og trúarlega
virkni og trúarlega skuldbindingu ungs fólks. Niðurstöðurnar sýna að þrátt
fyrir að unga fólkið telji að manneskjan þurfi alltaf eitthvað til að trúa á
og að mikilvægt sé að vera sannfærður um lífsviðhorf sitt og lifa samkvæmt
því, þá virðast áhrif trúarbragða á tilvistartúlkun þess og viðhorf vera lítil
og trúarleg iðkun virðist ekki hafa mikla þýðingu fyrir það. Um fjórðungur
skilgreinir sig sem trúlaus eða utan trúfélaga og eru strákar þar í meirihluta.
Mörg virðast líta á trúarlega afstöðu sem einkamál en um leið eru þau flest
jákvæð gagnvart trúarlegum margbreytileika, finnst sjálfsagt að taka tillit
til ólíkra hefða fólks eftir menningu og trú og að ólík trúarbrögð fái að
blómstra í samfélaginu.
English summary
The article presents some fmdings in an on-going research project on young
people’s life view and values in a multicultural society. The research project
uses interdisciplinary approaches in religious education, multicultural
studies, pedagogy and history of ideas. The study is a three year project
(2011-2013) based on both quantitative and qualitative research methods.
In the article the focus is especially on the quantitative part of the project.
904 students, 18 years and older, in seven high schools in different parts
72