Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2012, Síða 42
guðspjöllum er Jóhannesarguðspjall sérstakt fyrir þær sakir að þar gætir
neikvæðni í garð Gyðinga. Skýringin mun vera sú að þegar guðspjallið
var ritað var orðið uppgjör milli kristinna manna eða fylgjenda Jesú
Krists og Gyðinga og vildu Gyðingar rjúfa samneyti við kristna menn.11
Þessi neikvæðni Jóhannesarguðspjalls í garð Gyðinga kemur líka fram í
píslarsögu þess (Jóh 18. og 19. kafli) sem eru felldir inn í þá píslarsögu
sem Hallgrímur fylgir í Passíusálmunum. Hið mikla tónverk Bachs yfir
píslarsögu Jóhannesar, Jóhannesarpassían, hefur að sama skapi legið undir
ámæli fyrir gyðingahatur.12
Neikvæð ummæli guðspjallanna og Píslarsögunnar og þá sérstaklega
píslarsögu Jóhannesar í garð Gyðinga voru oft notuð sem tilefni til ofsókna
gegn Gyðingum og ef ekki ofsókna þá til að gera af þeim skrípamyndir margs
konar eins og Gyðingurinn Shylock í leikriti Shakespears Kaupmaðurinn í
Feneyjum er dæmi um. Það er hins vegar ekki hægt að kalla slíkar ofsóknir
eða lítilsvirðingu kynþáttahatur eins og gyðingahatur og gyðingaofsóknir
nasista og annarra kynþáttasinna. Miklu fremur voru ummæli og breytni af
þessu tagi talin trúarlegs eðlis eða stöfuðu af deilum milli trúarbragðahópa.
Menn snerust gegn Gyðingum á trúarlegum forsendum, fyrir að viðurkenna
ekki Jesú sem Messías og útskýra þannig ritningarnar á rangan hátt. Mjög
oft var þeirri áskökun beint að þeim að þeir ættu sök á dauða Krists.13 Þess
konar skoðanir og breytni eru skammarblettur á kirkjusögunni og í alla
staði rangt.
Eftir helförina hafa augu kristinna manna lokist upp fyrir hættunni
af slíku tali og breytni og margir guðfræðingar leitast við að endurmeta
afstöðuna til gyðingdómsins. í nútímanum hafa kristnir fræðimenn líka
gert sér far um að rannsaka ummæli Jóhannesarguðspjalls um Gyðinga og
spurt hvort tal Jóhannesar um Gyðinga sé allt á einn veg. Niðurstaðan er sú
að svo er ekki. Þegar Jóhannes talar neikvætt um Gyðinga á hann fyrst og
fremst við ráðamenn Gyðinga svo sem öldungaráðið í Jerúsalem, prestana,
og menn sem voru Jesú andsnúnir, snerust gegn honum og voru handbendi
11 Sjá skýringarrit yfir Jóhannesarguðspjall t.d. C.K. Barrett 1962, The Gospel accorind to St. John.
London and C.H. Dodd 1972, The Interpretation of the Fourrth Gospel. Cambridge, ogC.H.
Dodd 1974, Historical Tradition in the Fourth Gospel. Cambridge.
12 Sjá http://en.wikipedia.org/wiki/St_John_Passion; http://welltempered.wordpress.
com/2010/03/23/; http://www.choralnet.Org/view/277795#278119; http://www.secondexodus.
com/html/jewishcatholic-dialogue/.
13 Sjá t.d. J.M.Kittelson 1986, Luther the Reformer. The Story of the Man andHis Career. Minneapolis,
s. 273-275.
40