Orð og tunga - 01.06.1990, Blaðsíða 17
Setningarávarp
Gunnar M. Hansson
forstjóri IBM á Islandi
Menntamálaráðherra, fyrirlesarar og gestir!
Það er nær daglegur viðburður að í heimsókn til IBM komi aðilar til að biðja um
styrki til margvíslegra verkefna, en þrátt fyrir góðan vilja er því miður aðeins
hægt að uppfylla óskir örfárra þeirra sem kveðja dyra í þessum tilgangi.
I slíkum erindagerðum kom formaður stjórnar Orðabókar Háskólans, Jón
Friðjónsson, til mín síðla árs 1983. Sú heimsókn varð kveikjan að fleiri fundum
um málefni Orðabókarinnar og sá ég fljótt hversu mikil auðlind og stuðningur
hún hefur verið íslenskri tungu og hve tölvutæknin gæti komið að miklum notum
í starfsemi hennar.
Það vakti athygli mína hversu mikinn áhuga starfsfólk Orðabókarinnar sýndi
starfi sínu og hversu yfirgripsmikilli þekkingu það bjó yfir. Hér var greinilega
hópur fólks sem gat hrint í framkvæmd draumi okkar hjá IBM um að gera
íslenskri tungu sem hæst undir höfði á tölvuöld. Þörfin var brýn og bregðast
þurfti skjótt við ef okkur ætti að takast að fylgja öðrum þjóðum eftir í þessum
efnum.
An þess að ég tíundi frekar framgang mála get ég sagt að samstarf Orðabók-
arinnar og IBM sem hófst á árinu 1984 hefur aukist ár frá ári. Nú er svo komið
að um 20 starfsmenn frá Orðabók Háskólans starfa í þýðingastöð okkar hér í
Sigtúni 3 við þýðingar, handbókagerð og síðast en ekki síst nýyrðasmíð.
Framlag IBM á síðastliðnu ári vegna þýðinga úr erlendum málum á íslensku
nam um 60 milljónum króna og má fullyrða að ekkert fyrirtæki hérlendis hafi
lagt jafn mikið af mörkum undanfarin ár til stuðnings og eflingar íslenskri tungu.
A fáum eða engum sviðum hefur framþróun verið jafn ör á undanförnum árum
og á tölvusviðinu, hvort sem um er að ræða vélbúnað eða hugbúnað. Tölvutækni
og tölvunotkun hefur fylgt mikill erlendur orðaforði sem bregðast hefur þurft
við, ekki síst með því að mynda íslensk nýyrði og sveigja allt málfar um tölv-
ur að íslenskum venjum. Hér hefur Orðabók Háskólans unnið mikið starf með
þýðingum sínum.
IBM á íslandi hefur verið það metnaðarmál að leggja íslensku málræktarstarfi
lið með því að skila öllu efni um tölvunotkun frá sér á lýtalausri íslensku. Til
þess hefur verið lagt í mikla fjárfestingu. Það liggur í augum uppi að IBM mun
xv