Orð og tunga - 01.06.1990, Síða 59

Orð og tunga - 01.06.1990, Síða 59
Sigrún Helgadóttir: Um Tölvuorðasafn 37 þeim ílokki er sennilega mótald fyrir modem. Enska orðið modem er stytting á modulator/demodulator, þ.e. tæki sem mótar og afmótar merki. Ef búa ætti til íslenskt íðorð sem segði alla þá sögu yrði það nokkuð langt. Þess vegna kom fram sú hugmynd að bæta endingunni -ald aftan við stofninn í sögninni að móta svo úr yrði mótald. Onnur leið væri að taka upp enska orðið nánast óbreytt (sbr. 4. leið hér á undan) svo að úr yrði orðið módem. Margir nota það og finna ekkert athugavert við það. Hins vegar finnur hver Islendingur að orðið er útlent. I þessu sambandi er e.t.v. vert að benda á að orðanefnd rafmagnsverkfræðinga greip til viðskeytisins -ald á undan okkur og myndaði m.a. orðið hitald fyrir heat element og ferjald fyrir transducer. Við höfum í fáein skipti notað viðskeytið -ald til að mynda heiti á tækjum. Um það eru þrjú dæmi í safninu: mótald, pakkald og skjáald. Veriö getur að tölvunotendur séu ekki reiðubúnir að taka við þessum boðskap orðanefndar, þó virðist sumum a.m.k. finnast orðið mótald skárra en módem. Samsetningar í Tölvuorðasafninu eru óteljandi og af ýmsum gerðum og hirði ég ekki um að nefna dæmi um þær. En ég mun minnast aðeins á þann flokk sem kalla mætti erlend lán með aðlögun. Eins og ég nefndi áðan hefur orðanefndin ekki lista með orðmynduuaraðferðum á borðinu þegar verið er að leita að nýjum íðorðum. Því er þeim aðferðum, sem hér hafa verið nefndar, alls ekki beitt eftir sérstakri röð. Við reynum hins vegar alltaf fyrst að nota innlent efni ef þess er nokkur kostur. Enska orðið code er bæði sögn og nafnorð. Nafnorðið er heiti á ‘reglu sem varpar stökum eins mengis á stök annars mengis’ og sögnin þýðir ‘að umskrá gögn með því að nota þessa reglu’. Okkur tókst ekki að finna neinn íslenskan stofn sem væri nothæfur í þessari merkingu og öllum þeim samsetning- um sem á þurfti að halda. Þrautalendingin varð því sú að reyna að sníða enska stofninn til. Ur því varð sögnin að kóta og karlkynsnafnorðið kóti. Við gátum síðan notað þennan stofn í öllum samsetningum þar sem orðið code kom fyrir. Annað dæmi um tökuorð er hvorugkynsorðið bœti sem er myndað sem hljóðlík- ing við enska orðið byte sem er stytting á orðasambandinu by eight. Einnig mætti benda á karlkynsorðið biti sem er notað sem þýðing á bit og er heiti á tölustaf í tvíundakerfinu. Bit er stytting á binary integer en hér er um orðaleik að ræða þar sem bit í ensku er ‘eitthvað lítið’. I íslensku er biti einnig eitthvað lítið, en enska orðið bit og íslenska orðið biti eru áreiðanlega af sama stofni. Enska og íslenska eru germönsk mál og mörg orð í þessum tveimur tungumálum eru af sama stofni. Þess vegna er ekki óeðlilegt að ensku og íslensku íðorðin séu keimlík þótt ekki sé um beina lántöku að ræða. Ég mun nú reyna að skýra nánar hvað ég átti við með stöðlun orðaforðans fyrr í erindinu. Þessi stöðlun er tvíþætt. I fyrsta lagi eru gerðar tillögur um heiti á tilteknum hugtökum. Þegar tveir menn tala saman er æskilegt að þeir skilji hvor annan. Orðanefndin hefur því raðað heitum í forgangsröð ef nauðsynlegt er talið að fleiri en eitt heiti fylgi tilteknu hugtaki. Það sem fyrst er talið er aðalorðið sem við mælum með að sé notað. Það verður síðan að koma í ljós hvort tölvunotendur eru sammála. En við verðum að vera sjálfum okkur samkvæm og nota þetta heiti alltaf þegar það kemur fyrir í skilgreiningum og skýringum. Við getum ekki leyft okkur nein frávik eða fjölbreytni í stíl því lesandinn á heimtingu á því að vita nákvæmlega hvcið við er átt. Þess vegna má t.d. ekki nota ýmist hnappaborð eða
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Orð og tunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.