Orð og tunga - 01.06.1990, Síða 67

Orð og tunga - 01.06.1990, Síða 67
Stefán Briem: Vélrænar tungumálaþýðingar 45 DLT-þýðingarkerfið DLT er skammstöfun á nafninu Distribuita Lingvo-Tradukado á esperanto eða Distributed Language Translation á ensku. Helsta sérkenni DLT-þýðingarkerfisins er hlutverk millimálsins, en sem milli- mál varð fyrir valinu alþjóðamálið esperanto. Allar þýðingar milli þjóðtungna liggja gegnum millimálið. DLT er því venjulega flokkað sem millimálskerfi, þótt leiða megi að því nokkur rök að í rauninni sé um að ræða tvær aðskildar þýð- ingar þegar þýtt er milli þjóðtungna, aðra af frummálinu á esperanto og hina af esperanto á viðtökumálið. Nafn þýðingarkerfisins vísar til þess að þessi tvö skref í þýðingunni geta farið fram með löngu millibili og á mismunandi stöðum, jafnvel sitt í hvoru landi, eða m.ö.o. að þýðingin er dreifð bæði í tíma og rúmi. Öll tungumál eru hlutgeng í DLT-kerfið. Á þetta er lögð áhersla þegar í upphafi með því að hefja vinnslu á málum eins og japönsku, finnsku, pólsku og bengölsku auk germanskra og rómanskra tungumála. Einn helsti kostur þess að nota millimál er sá að fyrir hverja þjóðtungu þarf aðeins að sinna þýðingu af henni á millimálið og af millimálinu á þjóðtunguna. Hugmyndin um millimál er síður en svo ný og um það langar mig að vitna aftur í Alþýðublaðsgreinina frá 1958. Þar segir orðrétt: Því má bæta við, að í fjölþýðingarvélum yrði innsetta málið fyrst þýtt á einskonar „alþjóðamál“, sennilega kínversku, því það er mjög rökrænt tungumál, einfalt að myndun og málfræði. Með því að styðja á hnapp, væri síðan hægt að þýða úr því og á svo mörg útsett mál, sem vera skal. Annar mikill kostur sem fylgir því að nota mannamál eins og esperanto sem millimál er sá mikli sparnaður sem næst með því að geta leyst flest merkingar- fræðileg vandamál sameiginlega á millimálinu í stað þess að þurfa að fást við þau á hverri þjóðtungu fyrir sig. Og í þriðja lagi má nefna þá kosti esperantos umfram önnur tungumál að auk þess að vera einkar rökrænt mál með einfalda málfræði án undantekninga þá gætir mun minna margræðni í esperanto en í öðrum tungumálum. Varðandi gæði þýðinganna hafa forsvarsmenn DLT-kerfisins sett því það markmið að þýða samfellt ritað mál milli tungumála þannig að þýðingin verði málfræðilega rétt og að efni frumtextans komist til skila á viðtökumálinu. Þessu markmiði ætla þeir að ná á síðasta áratug 20. aldar með hálfsjálfvirkri þýðingu, en með því er átt við að fyrri hluti þýðingarinnar, af frummálinu á esperanto, gerist ekki að öllu leyti sjálfvirkt heldur leiti tölvan eftir úrskurði þess sem matar hana á frumtexta, þegar hún ræður ekki sjálf við að leysa úr margræðni textans. Síðari hluti þýðingarinnar á hins vegar að vera algjörlega sjálfvirkur, af esperanto á viðtökumálið. En forsenda þess er sú að millimálið sé laust við margræðni. Til þess að uppfylla þá kröfu hefur þurft að gera smávægi- legar breytingar frá réttu esperanto, en þær eru ekki meiri en svo að esperantistar eiga auðvelt með að skilja þá mállýsku. Við hönnun DLT-þýðingarkerfisins er einkum miðað við að það verði notað í alþjóðlegu tölvuneti til að miðla upplýsingum til notenda á móðurmáli þeirra.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Orð og tunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.