Orð og tunga - 01.06.1990, Page 95
Orn Kaldalóns: Þýðingastarfsemi IBM
73
SAA hugbúnaðarhögun IBM (á ensku Systems Application Architecture) mið-
ar að því að samræma aðgang notandans að tölvukerfum á þremur megintölvu-
gerðum IBM sem eru þessai:
• IBM PS/2 einmenningstölvur, með stýrikei-fið OS/2
• AS/400 miðlungstölvur, með stýrikerfið OS/400
• IBM S/370 stórtölvur, með stýrikerfin VM og MVS.
Ég freistast enn til að ha'da líkingunni við farartækin og rifja upp gamla
minningu er ég kom inn > stýrishúsið á afdönkuðum hertrukk og sá að bremsan
var hægra megin við bensh r> . ;ma. Bíllinn hefur sennilega verið framleiddur áður
en bensín-, hemla- og teiigs;:: íetlarnir voru staðlaðir í þeim skorðum sem þeir
eru í nú, og má velta því fyrir sér hvernig ökumönnum nú á dögum tækist að
bregðast rétt við aðsteðjandi vanda í slíkum bíl.
Ákveðin stöðlun er því beinlínis nauðsynleg til að tryggja farsæl samskipti
manna við tæki ýmiss konar. Það á meðal annars við um stýrikerfi á tölvum. Með
staðlaðri hugbúnaðarhögun IBM, SAA, er hugbúnaði mismunandi tölvugerða
búið samræmt snið, notendum til hægðarauka. SAA skrifstofukerfin sem nú er
verið að þýða falla öll að þessum staðli.
Hvert er hlutverk skrifstofukerfanna, og hver er ávinningurinn að notkun
þeirra? í kónnun sem gerð var í Kanada fyrir 5 árum kom í ljós að fram að þeim
tíma hafði tölvunotkun í mesta iagi haft í för með sér 5% sparnað í almennri
skrifstofuvinnu, en með notkun sérhæfðari tölvukerfa eins og gagnagrunna og
launaforrita hafði náðst fram sparnaður sem talinn var í tugum prósenta.
Síðan hafa komið fram margar athyglisverðar nýjungar. Ég bendi sérstaklega
á eftirtalin atriði:
• þægileg ritvinnsla með ritskyggningu
• aðgengileg skjalageymsla
• auðveldar skeytasendingar — tölvupóstur
• innbyggð nafnaskrá og símaskrá
• dagbók sem eigandi heimilar öðrum aðgang að
• fundarboðun, þar sem tölvan frnnur hentugan tíma fyrir alla fundarmenn
Tökum dæmi:
• Maður kveikir á tölvunni að morgni og skoðar nýkomin skeyti. Þau sem
eiga erindi til annarra eru send til eins margra og þörf er á, á nokkrum
sekúndum. Síðan er skeytinu eða skjalinu forðað í þar til gerða geymslu.
Utprentun og ljósritur er algerlega óþörf.
• Þurfi að svara skeyti er stutt á einn hnapp og svarið vélritað á skjáinn.
Síðan er stutt á annan hnapp. Tölvan veit í þessu tilviki að verið er að
svara sendanda — og sendir skeytið af stað.