Skírnir - 01.04.2003, Blaðsíða 35
SKÍRNIR
HINN BLINDI, HINN EINEYGÐI OG ...
29
goðsins: í goðsögninni um róður hans,27 goðsögninni um ferð
hans til Utgarða-Loka28 og loks í goðsögninni um hvernig hann
endurheimti hamar sinn Mjölni er honum hafði verið stolið.29 All-
ar þessar frásagnir setja á oddinn að augnaráð Þórs sé ógnvekjandi.
Við það bætist að Þórshamrar frá því um 1000 benda til þess að
hvasst augnaráð hafi verið mikilsvert útlitseinkenni hans; á sjálfan
hamarinn eru skýrt mörkuð augu (Lindow 1997: 15; sbr. t.d.
mynd nr. 17 í Turville-Petre 1964).30
í Þrymskviðu hefur jötunninn Þrymur stolið hamrinum
Mjölni og krefst í stað hamarsins að fá Freyju að konu. Freyja
hafnar staðfastlega að fallast á þennan ráðahag og lyktir mála
verða þær að Þór dulbýr sig sem brúðina Freyju, til að endur-
heimta hamarinn, en er þó tregur til þar eð hann óttast auðvitað að
goðin muni saka hann um ergi eða skort á karlmennsku. Þegar Þór
situr um síðir í Jötunheimum í brúðarkjólnum, etur hann og
drekkur svo mjög að Þrymur undrast það, og þegar jötunninn
lyftir brúðarslörinu til að kyssa brúði sína, hrekkur hann felmtri
sleginn frá henni:
Hví eru öndótt
augu Freyju?
þykki mér ór augum
eldr of brenna.
Þrymskviða 27 (Edda 1962: 115)
27 Um róður Þórs er ort í þremur dróttkvæðum; Ragnarsdrápu (Den norsk-is-
landske skjaldedigtning 1912-1914, Al: 3-4; Bl: 3M-), Húsdrápu (Den norsk-
islandske skjaldedigtning 1912-1914, Al: 137; Bl: 128-129) og að því er virðist
í kvæðisbroti eftir Gamla gnævaðarskáld (Den norsk-islandske skjaldedigtning
Al: 140; Bl: 132). Að auki er mýtuna að finna í eddukvæðinu Hymiskviðu og
í Snorra Eddu. Bæði í Húsdrápu og Snorra Eddu er því lýst hvernig Þór og
Miðgarðsormur stara hvor á annan. I 4. erindi Húsdrápu segir að Þór hafi skot-
ið „ægigeislum" að orminum en hann starði á móti. Á svipaðan hátt segir
Snorra Edda „en þat má segja, at engi hefir sá sét ógurligar sjónir, er eigi mátti
þat sjá, er Þórr hvesti augun á orminn, en ormrinn starði neðan í mót ok blés
eitrinu" (Snorra Edda, Gylfaginning 32, 1931: 62-63).
28 Snorra Edda, Gylfaginning 26 (1931: 49-50). Frá ferð Þórs til Útgarða er einn-
ig sagt í Hymiskviðu.
29 Sú frásögn er í eddukvæðinu Þrymskviðu.
30 Hart augnaráð Þórs er einnig nefnt í Óláfs sögu helga (Heimskringla,
1893-1900, 2: 234).