Skírnir - 01.04.2003, Blaðsíða 64
58
GOTTSKÁLK Þ. JENSSON
SKÍRNIR
sem er eldra rit en Crymogaea, notar ekki hinn grísk-latneska
orðaforða Bodinus, og hann lýsir ekki hruni íslenska „þjóðveldis-
ins“ í samræmi við líkan Bodinus, því samkvæmt honum „við-
gengst samt enn á Islandi hið gamla stjórnarform, sem upphaflega
var ákveðið, þegar fyrst var komið á skattlandsfyrirkomulagi á
eylandi voru. Því Islendingar játuðust undir Noregskonunga með
þeim skilmálum að þeir fengju að lifa að fornum siðum, lögum og
venjum" (Quantum tamen ad politicam gubernationem et ad-
ministrationem attinet, manet adhuc in Islandica uetusta illa poli-
tiie forma, quœ initio constituta est, cum insula nostra in formam
prouinciæ primum redigebatur. Nam eo pacto Noruagicis regibus
Islandi sese dediderunt, ut liceret antiquis moribus, legibus et
consuetudine uiuere, 206).
Framhald sögunnar af innrás barbara í Róm, sem Arngrímur
hefur eftir „nafntoguðum höfundum" (magni nominis auctores),
þ.e.a.s. frumkvöðlum húmanismans, er svo vel þekkt að því er
sleppt. Eftir hrun rómverskrar menningar og spillingu latneskrar
tungu komu langar og myrkar miðaldir, sem lauk ekki fyrr en með
endurreisninni, hreinsun latínu og afturhvarfs til usus fornaldar-
höfunda (sbr. málið á Crymogaea sjálfri).48 Arngrímur harmar,
svo til orðrétt eftir Bodinus, að tungan sem töluð var á Italíu og í
Grikklandi á hans tíma hafi breyst svo mikið að „hvorki Róm né
Aþena virðast hafa verið til eins og ástandið er þar nú.“49 Þessi orð
Bodinus lætur Arngrímur mynda hliðstæðu við sín eigin orð um
að Norðmenn hafi glatað að fullu tungu sinni (Norvegis enim
modernis ... peregrinorum commercia lingvam non adulterárunt
solum, sed ademerunt). Það sem Arngrímur segir ekki, en lesa má
milli línanna, er að þótt latína væri ekki lengur töluð á Ítalíu þá
48 Um afstöðu einstakra íslenskra latínuhöfunda til málnotkunar í latínu sjá Svav-
ar Hrafn Svavarsson 2003.
49 Kaflinn í Methodus er svona, og kemur sem nánari útlistun á því hvernig
tungumál breytast við blöndun ættbálka við þjóðflutninga: Altera cause est in
coloniarum acpopulorum inter ipsos confusione. argumento sit Italia & Græcia,
qux tot seculis puritatem Grœci ac Latini sermonis tenuerunt, totoque terrarum
orhe disseminarunt: postea quam Scythœ & Gothi utranque invaserunt, tanta
mutatio consecuta est, utnec Latium, nec Attica ubi nunc sunt unquam estitisse
videantur.