Skírnir - 01.04.2003, Blaðsíða 59
SKÍRNIR
PURITAS NOSTRÆ LINGVÆ
53
enska úr inngangi Fyrstu málfræðiritgerðarinnar í Wormsbók, en
þar stendur að Englendingar og Islendingar séu „einnar tungu þó
at gQrzk hafi mj<jk gnnur tveggja eða nokkvuð báðar.“40 Skota og
Ira hefur hann þá getað fellt undir sömu reglu og Englendinga á
þeirri forsendu að um nágrannaþjóðir væri að ræða. Allt styðst
þetta við nokkur rök, þótt það standist ekki nánari athugun.
Kenning Arngríms virðist einnig byggja á útbreiddri hugmynd
meðal menntaðra Islendinga um þær mundir. Islenskur höfundur
Qualiscunque Descriptio Islandiae, sem talin er skrifuð á árunum
1588/1589,41 minnist á skyldleika íslensku við hin Norðurlanda-
málin og bætir svo við „að þess vegna séu sumir jafnvel þeirrar
skoðunar að tungan [þ.e. fornnorræna] sé ein af höfuðtungum
heimsins, sem hafi verið gefin einhverjum ákveðnum mönnum
fyrir undursamlega velgjörð guðs, þegar í hinum almenna tungu-
málaruglingi“ (unde etiam nonnullis persuasum est linguam unam
esse ex principalibus linguis totius orbis, attributam uidelicet qui-
busdam certis hominibus admirando Dei beneficio statim in uni-
uersali linguarum confusione, 97). Síðar í sama riti er því haldið
fram að „vegna óspilltrar forneskju þess ... sé líklegt að þetta mál
sé eitt úr hópi allra höfuðtungna, en hin móðurmálin, það er Dana
og Svía, séu leidd af því“ (propter incorruptam antiquitatem ...
verisimile esse illam linguam unam esse ex omnibus linguis
principalibus et reliqua idiomata, Danorum et Suecorum, ex bac
esse deducta, 219). Það voru reyndar ekki bara Islendingar sem
héldu slíku fram um móðurmál sitt. Eins og minnst var á gefur
portrettið af danska sagnaritaranum Vedel í skyn forneskju danskra
rúna, og á sautjándu öld reyndi Svíinn Olaf Rudbeck að sýna fram
á að sænska, sem hann taldi vera gotnesku, væri eldri en önnur
Evrópumál, komin beint úr hebresku.42 Þessar hugmyndir minna
40 Hreinn Benediktsson 1972, 208; stafsetning samræmd hér. Um þetta efni sjá
Gunnar Harðarson 1999.
41 Jakob Benediktsson 1956 færir rök fyrir því að höfundurinn sé Oddur Einars-
son.
42 Árni Sigurjónsson 1995, 74. Reyndar var alsiða meðal kristinna manna frá því
á miðöldum að rekja allar tungur heimsins, þ. á m. latínu og grísku, aftur til
hebresku, einu tungunnar fyrir babelska tungumálaruglinginn sem sagt er frá í