Skírnir - 01.04.2003, Blaðsíða 109
SKÍRNIR
VATNIÐ OG UPPSPRETTAN
103
ar. Skýrt dæmi um þetta viðhorf eldri kynslóðar Víetnama á ís-
landi er faðir eins flóttamannsins úr fyrsta hópnum, sem kom til
íslands með ösku konu sinnar. Hann vildi deyja hér þar sem börn-
in hans höfðu tekið sér bólfestu og vildi vera grafinn eins og inn-
fæddur Islendingur, ásamt konu sinni. Fjölskyldufaðirinn hafði
með öðrum orðum flutt fjölskylduböndin til nýrra heimkynna.
Viðhorf eldri kynslóðarinnar til nýrra heimkynna eru flókin,
eins og gefur að skilja. Eldra fólkið í víetnömsku fjölskyldunum
hér á landi (yfirleitt aldraðir foreldrar flóttamanna, sem komu til
íslands eftir að börnin þeirra fengu landvistarleyfi) hugsa ennþá á
víetnömsku. Þeim finnst erfitt að læra íslensku. Rætur þessa fólks
í víetnamskri menningu liggja ennþá mjög djúpt og það er ekki
sátt við hegðun og virðingarleysi yngri kynslóðarinnar. Aftur á
móti gætir annarra viðhorfa hjá þeim sem komu fyrstir úr flótta-
mannabúðum, en þeir eru núna á fimmtugs- og sextugsaldri og
hafa búið hér í yfir tuttugu ár. Karlmennirnir, sem voru vanir að
hafa mest samband við látna forfeður, segjast hafa of mikið að gera
í daglegu lífi til að sinna þeim skyldum. Konur þeirra virðast hafa
tekið til við að sinna ölturum. Samt er trúin alls ekki horfin hjá
karlmönnunum. Einum viðmælenda minna á fimmtugsaldri, sem
sagðist vera dálítið efins um sögurnar sem hann heyrði um andana
sem krakki, þykir samt nauðsynlegt að setja upp smá altari fyrir
Búdda í glugganum og brenna reykelsi fyrir hann. Og þó að hann
vilji ekki flytja aftur til Víetnams, finnst honum að með aldrinum
hugsi hann æ oftar um æsku sína, orð, siði, lykt og andlit. Eins og
orð hans bera með sér, finnst honum hann vera að uppgötva að
þrátt fyrir allt sé hann Víetnami innst inni. Yngstu krakkarnir
virðast aftur á móti skilja lítið siði eldra fólksins. Samt finnst þeim
nauðsynlegt að halda í hefðirnar. Ein fimmtán ára stúlka sem ég
talaði við sagðist því miður ekki þola víetnamska tónlist og að hún
vildi helst giftast íslenskum strák. Samt var hún viss um að hún
vildi taka við ábyrgðinni á fjölskyldualtarinu eftir andlát móður
sínar. Hún á líka Búdda í herberginu sínu, brennir reykelsi fyrir
hann og biður hann um hjálp þegar kreppir að, til dæmis fyrir
samræmdu prófin í íslensku og stærðfræði. Henni finnst líka að
forfeðurnir vaki yfir sér.