Skírnir - 01.04.2003, Blaðsíða 177
GREINAR UM BÆKUR
KENEVA KUNZ
Þýðingar í tíma og rúmi
Hér verður gerð tilraun til að fjalla lítillega um ekki færri en fimm bækur,
sem eiga það sammerkt að vera þýðingar á norrænum miðaldaverkum er
hafa birst nýlega á ýmsum heimsmálum: ensku, þýsku og frönsku. Þær eru:
Agrip af NóregskonungasQgum. A twelfth-century synoptic history of the kings of
Norway. Edited and translated with an introduction and notes by M. J. Driscoll.
Lundúnum: Viking Society for Northern Research, 1995.
Þetta er elsta varðveitta yfirlitsrit um Noregskonunga á norrænu máli,
talið samið í Noregi á síðasta áratug 12. aldar. í Islenskri bókmenntasögu
segir um Ágrip: „það er réttnefni að því leyti að frásögnin er sums staðar
stutt og spannar yfir langan tíma í sögu Noregs, en á hinn bóginn er all-
rækilega sagt frá atburðum, sem nútímamönnum virðast ekki mjög mikil-
vægir.“’ Utgáfa þessi hefur að geyma samhliða texta á norrænu og ensku,
sem gerir samanburð við frumtextann auðveldan og verk þýðandans enn
vandasamara.
Egils Saga. Die Saga von Egil Skalla-Grimsson. Herausgeben und aus dem Altislánd-
ischen ubersetzt von Kurt Schier. Munchen: Eugen Diederichs Verlag, 1996.
Þetta er ný þýðing eftir prófessor Kurt Schier á einni þekktustu og mest
þýddu íslendingasögunni, birt í vísindalegri ritröð, SAGA, Bibliothek
der altnordischen Literatur.
Histoire des rois de Norvege par Snorri Sturluson, premiére partie. Traduit du vieil
islandais, introduit et annoté par Frangois-Xavier Dillmann. París: Gallimard,
2000.
Þetta er fyrsti þriðjungur Heimskringlu, fram að Ólafs sögu helga.
Isldndischen Antikensagas. Band I. Herausgeben und aus dem Altislándischen
úbersetzt von Stefanie Wúrth. Múnchen: Diederichs, 1996.
Þetta eru þrjár sögur, Trójumanna saga, Breta sögur og Alexanders saga,
sem þýddar voru á íslensku seint á 12. eða á 13. öld. Latnesku frumtext-
arnir voru mjög útbreiddir á miðöldum og skýrðu frá því sem var álitin
vera sameiginleg fortíð Evrópubúa. Fyrstu tvö verkin eru í óbundnu máli,
De excidio Troiae Historia og Historia Regum Britanniae, en það þriðja í
1 Guðrún Nordal, Sverrir Tómasson, Vésteinn Ólason (ritstj.), Islensk hók-
menntasaga. Reykjavík: Mál og menning (1992), bls. 362.
Skímir, 177. ár (vor 2003)