Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Blaðsíða 49
B o r g a r a l e g ó h l ý ð n i
TMM 2009 · 2 49
meðbræður. Ríki sem bæri þennan ávöxt og leyfði honum að falla þegar
hann þroskaðist mundi undirbúa jarðveginn fyrir enn glæstara ríki sem
ég hef líka gert mér í hugarlund en hef ekki enn séð neins staðar.
Elísabet Gunnarsdóttir þýddi
Skýringar
1 Þessi orð eru oft rakin til Thomasar Jefferson Bandaríkjaforseta en munu í raun vera einkunn-
arorð tímaritsins Democratic Review sem Thoreau skrifaði nokkrum sinnum í.
2 Stríðið við Mexíkó hófst ekki fyrr en 1846, en Thoreau neitaði að greiða skattinn allt frá 1843.
Stríðið var aftur á móti mjög óvinsælt í Norðurríkjunum því þeir sem vildu afnema þrælahald
litu á það sem tilraun til að stækka umráðasvæði þrælahaldaranna.
3 Á þessum tíma var mikið umrót í bandarískum stjórnmálum og létu stjórnleysingjar þar nokk-
uð til sín taka.
4 Fluttu púður úr birgðageymslum til hermannanna í orrustum.
5 Úr kvæðinu „The Burial of Sir John Moore at Corunna“ eftir Charles Wolfe (1791–1823).
6 Lið óbreyttra borgara sem lögreglan getur kvatt til til að bæla niður óeirðir.
7 William Shakespeare: Hamlet, 5.1.236-237. Þýðing Helga Hálfdanarsonar.
8 William Shakespeare: Jóhann landlausi, 5.2.79-82. Þýðing Helga Hálfdanarsonar.
9 Bandaríska byltingin sem hófst í heimabæ Thoreaus, Concord, 19. apríl 1775.
10 William Paley (1734–1805): Moral and Prinicipals of Political Philosophy.
11 Cicero: De officiis, 3.23.
12 Mattheusar guðspjall 10:39.
13 Thomas Middleton (1580–1627) eða Cyril Tourneur (1575?–1626): The Revengers Tragadie.
14 Á þessum tíma kom andstaðan gegn afnámi þrælahaldsins að verulegu leyti frá Norður-
ríkjabúum sem óttuðust að slík breyting kynni að neikvæð áhrif á fjármálalíf Bandaríkjanna.
15 1. Korintubréf 5.6.
16 Á flokksþingi Demókrataflokksins í Baltimore árið 1848 var reynt að komast hjá klofningi
Norður- og Suðurríkjanna með því að ræða ekki þrælahaldið.
17 Samtök góðtemplara – The International Organisation of Good Templars (IOGT) – voru stofn-
uð í Bandaríkjunum á 19. öld.
18 Hér er vísað til frægrar greinar eftir Ralph Waldo Emerson (1803–1882): „Self-Reliance“.
19 Meðal róttækra andstæðinga þrælahaldsins í Norðurríkjunum voru þær raddir uppi að
Norðurríkin ættu að segja skilið við Bandaríkin því þingið mundi aldrei afnema þrælahald.
20 Nicolaus Copernicus (1473–1543) slapp við bannfæringuvegna bókar sinnar De revolonibus þar
sem hann lá á dánarbeði þegar bókin kom út.
21 Martin Luther (1483–1546), Þjóðverji og einn af leiðtogum mótmælenda á 16. öld, var bann-
færður árið 1520.
22 George Washington (1732–1799), fyrsti forseti Bandaríkjanna.
23 Benjamin Franklin (1706–1790), rithöfundur, stjórnmálamaður, vísindamaður, uppfinn-
ingamaður o.fl. var einn af leiðtogunum þegar lýst var yfir sjálfstæði Bandaríkjanna og tók þátt
í gerð stjórnarskrárinnar.
24 Sbr. John Knox (1505–1572), Skoti og einn af leiðtogum mótmælenda: „A man of God is always
in majority.“
25 Sam Staples var lögregluþjónn, fangavörður og skattheimtumaður í Concord á þessum tíma.
26 Stjórn Massachusettsríkis sendi Samuel Hoar (1778–1856), nágranna Thoreaus í Concord, til
Suður-Karólínu árið 1844 til að mótmæla handtöku svartra skipverja frá Massachusetts. Hann
var fluttur með valdi frá Suður-Karólínu að skipun stjórnvalda þar.
TMM_2_2009.indd 49 5/26/09 10:53:24 AM