Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Page 60
G u n n a r K a r l s s o n
60 TMM 2009 · 2
varð því sjálfkjörinn. Fylgismenn uppkastsins fengu 3.475 atkvæði eða
43%. En á þessum árum voru engar hlutfallskosningar, ekki einu sinni í
tveggja fulltrúa kjördæmum, svo að andstæðingarnir hlutu 25 þing-
menn en fylgismenn aðeins níu, sem ráðherrann gat að vísu hækkað upp
í 15 með því að tilnefna sex flokksmenn sína sem konungkjörna þing-
menn.26
Til að rekja þessa sögu örstutt áfram skal það nefnt að sambandsmálið
var loksins kljáð nokkurn veginn á enda með sambandslögunum sem
gengu í gildi 1. desember 1918. Þá fyrst kom umsamið ríkjasamband í
staðinn fyrir stöðulög danska Ríkisþingsins frá 1871. Stjórnarskrárbreyt-
ing sem lagaði innlenda stjórn íslenska ríkisins að sambandslögunum
1918, „Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands“, var síðan samþykkt árið
1920 og gekk í gildi 1. janúar árið eftir.27 Eftir það tvinnuðust a– og b–
þráður þjóðríkismyndunar gersamlega saman á ný og Íslendingar
afnámu sambandslögin með stjórnarskrárbreytingu árið 1944. Um leið
gerðu þeir eina litla stjórnarbyltingu þegar þeir afnámu konungdæmið
Ísland og tóku sér forseta í stað konungs. Svo seint sem 1928 var því hald-
ið fram á Alþingi, og virðist ekki hafa verið andmælt, að það hefði ekki
áhrif á konungssambandið þótt samningnum frá 1918 væri sagt upp.28
Hvers vegna var uppkastinu hafnað?
Í Vonarstræti segir Ármann Jakobsson söguna eindregið frá sjónarmiði
andstæðinga uppkastsins. Fyrst og fremst er þetta saga Theodóru Thor-
oddsen, hvernig hún, sem hafði ekki einu sinni kosningarétt til Alþing-
is, sogast inn í stjórnskipunarmálið í dvöl sinni með Skúla bónda sínum
í Kaupmannahöfn og hvetur hann til að rísa gegn uppkastinu, hálfbug-
aðan af veikindum:29
Þetta er bull, segir hún.
Hún er bálreið.
Þetta gengur ekki. Þetta er ekki það sem ályktun Þingvallafundarins snýst um.
Þetta er ekki það sem þjóðin vill.
Frjálst og sjálfstætt land stendur þar, segir hann. Er það ekki það sem við
viljum?
Sem eigi verður af hendi látið. Hvað þýðir það?
Ég veit það ekki. Ég spurði Hannes að því.
Og hvað sagði hann?
Hann sagði að það þýddi ekki neitt.
Þarf það þá að standa í lögunum?
Það er víst.
TMM_2_2009.indd 60 5/26/09 10:53:25 AM