Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Síða 90
Ú l f h i l d u r D a g s d ó t t i r
90 TMM 2009 · 2
yfirbragð. Lokasenan er þó fantastísk með afbrigðum. Hér verður ekki fjallað um bækur sem
virðast vera fantasíur en reynast svo hafa raunsæislegar skýringar – enda hefði Todorov ekki
líkað slík vinnubrögð. Af slíkum sögum má nefna Heljarþröm eftir Philip Ardagh, bækur
Lemony Snicket, Ríki gullna drekans eftir Isabel Allende, Eltingaleikinn: Leitina að Vermeer,
eftir Blue Ballett og Doktor Proktor og prumpuduftið eftir Jo Nesbø, svo örfá dæmi séu tekin.
Þessar sögur eru allar vissulega ævintýralegar, en falla þó tæplega undir fantasíuna eins og hún
er skilgreind hér. Hins vegar myndu þær hiklaust falla undir fantasíu eins og Kathryn Hume
skilgreinir hana, en hún er gagnrýnin á of afmarkandi kenningar Jackson og Todorovs og vill
opna hugtakið fantasía mun meira. Samkvæmt Hume getur fantasían verið hvaða frávik sem er
frá samþykktum veruleika. Sjá Fantasy and Mimesis: Responses to Reality in Western Literature,
New York, Methuen 1984.
12 Bókin kom reyndar út undir öðru nafni árið 2005, þá gefin út af höfundum. En svo varð hún
að óvæntum smelli og þá endurútgefin undir nafninu Tunnels.
13 Þetta hugtak er vinsælt hjá heimspekingum. Edmund Burke tengdi það hryllingi á átjándu öld
og varð kenning hans að lykilatriði fyrir gotnesku skáldsöguna og hugmyndaheim hennar.
Það er síðan Jean-François Lyotard sem tekur hugtakið upp síðla á tuttugustu öld til að lýsa
hugmyndaheimi póstmódernismans og þeirri stöðugu miðlun upplifana sem á sér stað í upp-
lýsingasamfélaginu. Sjá samantekt á hinu göfgaða í inngangi Nicolas Mirzoeff að The Visual
Culture Reader, London, Routledge 1998.
14 Hér er ekki úr vegi að minna á fleiri slík klassísk verk fantastískra barnabókmennta eins og
sögur Astrid Lindgren Bróðir minn Ljónshjarta og Elsku Míó minn. Hér mætti einnig nefna
þekkta greiningu Brunos Bettelheim á ævintýrum, en þar þjóna ævintýrin ákveðnu skírslu-
hlutverki fyrir börn. Sams konar skírsla hefur reyndar einnig verið mikið rædd í tengslum við
hrollvekjur, bæði fyrir börn og fullorðna, og er hér enn og aftur að finna dæmi um náin tengsl
þessara tveggja bókmenntagreina.
15 Kathryn Hume, Fantasy and Mimesis: Responses to Reality in Western Literature, New York,
Methuen 1984.
16 Hér væri hægt að rekja langan lista af dæmum um fantasíuna sem eins konar dæmisögu. Fræg-
asta táknsögu-túlkunin er líklegast sú sem speglar síðari heimsstyrjöld í Hringadróttinssögu.
17 Ritstjóri benti á að bók Salmans Rushdie, Jörðin undir fótum hennar, er eins konar fantasía og
vissulega hafa nokkur fantastísk verk verið þýdd, eins og Kona tímaflakkarans eftir Audrey
Niffenegger og verk Harukis Murakami. Þetta eru hinsvegar bækur sem flokkast frekar undir
fantasíu í bókmenntum en fantasíu sem bókmenntagrein og það eru þannig bækur sem ég er
að kalla eftir.
TMM_2_2009.indd 90 5/26/09 10:53:27 AM