Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Page 102
102 TMM 2009 · 2
Silja Aðalsteinsdóttir
Á heljarþröminni
Þegar litið er til baka yfir leikárið er eins og leikhúsin hafi fundið á sér
það sem framundan var, miklu betur en seðlabankastjórarnir. Furðu
mörg verk á liðnum vetri gerast á heljarþröminni sem samfélagið allt
hefur hangið á eða fjalla um gerspillingu auðsins. Óskilgreind ógn
hvíldi yfir einkennilega fólkinu hans Sigurðar Pálssonar í Utan gátta
sem Kristín Jóhannesdóttir stýrði í Kassanum í Þjóðleikhúsinu fyrir jól;
Martin McDonagh sýndi okkur fólk sem eiginlega er fallið fram af ystu
nöf í Vestrinu eina á Nýja sviði Borgarleikhússins, Jón Páll Eyjólfsson
stýrði; loksins var íslenskt samfélag tilbúið til að taka á móti verkum
Söruh Kane eins og kom í ljós þegar Leikfélag Reykjavíkur sýndi Rústað
á sama Nýja sviði undir stjórn Kristínar Eysteinsdóttur, og þegar þetta
er skrifað eru tvær siðspilltar milljarðameyjar á ferli á Reykjavíkursvæð-
inu. Önnur er sköpuð af Dürrenmatt og Sigrúnu Eddu Björnsdóttur, hin
af Ásdísi Thoroddsen og Þóreyju Sigþórsdóttur.
Milljarðamærin snýr aftur er sýnd á stóra sviði Borgarleikhússins
undir stjórn Kjartans Ragnarssonar; sú varð vellauðug á því að giftast
vel. Ódó á gjaldbuxum sem höfundurinn, Ásdís Thoroddsen, stýrir í
Hafnarfjarðarleikhúsinu fláði gamla manninn sem hún hafði unnið hjá
frá því hún var fjórtán ára og klæddi sig í húðina af neðri hluta líkama
hans, svo nefndar skollabrækur. Síðan stal hún peningi frá fátæku ekkj-
unni móður sinni og stakk í punginn og eftir það varð allt sem hún
snerti á að gulli. Báðar ávaxta þær fé sitt að einhverju leyti með vopna-
viðskiptum, gróðavænlegasta bisniss í bænum. Báðar eiga þær harma að
hefna á karlmanni úr efri stétt sem barnaði þær og yfirgaf þær svo, og
hefndarhugurinn gerir þær smám saman að skrímslum.
Verkin eru að öðru leyti ólík. Hjá Dürrenmatt fylgjumst við með því
þegar sú gamla kemur í heimsókn í fæðingarbæ sinn og fáum forsöguna
smám saman inn á milli atburða í nútímanum. Ásdís lætur sína konu
bjóða okkur til sín og segja okkur sögu sína í löngu eintali. Þær Sigrún
TMM_2_2009.indd 102 5/26/09 10:53:28 AM