Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 16
S t e fá n J ó n H a f s t e i n
16 TMM 2011 · 3
stöðnun á mörgum sviðum á Íslandi. Okkur leiðst að umbera fúsk af
því að hér var „almenn velmegun“ – byggð á stigvaxandi skuldsetningu
og rányrkju.29
Smæðin gerir illt vera
300 þús manna þjóð getur ekki átt nema einn góðan fótboltamann í
einu, og hann verður aðeins góður með því að spila með bestu liðum
heims. Pepsídeildarmenn verða aldrei heimsklassamenn. Eins er þetta
í stjórnmálum, bisness, menningu og félagsmálum: Fólkið okkar fær
ekki nægilega agaða skólun á mikilvægum sviðum. Með fullri virðingu
fyrir Vöku og Röskvu í Háskóla Íslands þá eru þessi stuðboltafélög
ekki æfing í landstjórn. Þetta fámennisböl Íslands kemur ofan á spill-
ingarkerfið. Þetta er auðvelt að sýna með dæmum: Listamenn okkar
lifa við alþjóðleg viðmið og verða að bera sig saman við það besta, þeir
fá ögun og hvatningu utan frá. Í náttúruvísindum geta fræðimenn
okkar ekki kjaftað sig í gegnum fræðin því agi kemur með vísinda-
legum kröfum og aþjóðlegri rýni. Í fjölmiðlum, pólitík og bisness geta
menn kjaftað sig í gegnum kerfið og komist til verulegra álna og áhrifa
umfram raunverulega getu – passi þeir að spila rétt.30
Afleiðingin af þessu skipulagða and-verðleika samfélagi er mjög
slæm fyrir Ísland vegna smæðar samfélagsins.31 Heilbrigð samkeppni,
ögun og þjálfun sem menn sækja til að nýta verðleika sína þrífst ekki.
Fyrirtækin eru rekin af vel tengdum pabbadrengjum, stjórnmálin af
sérhæfðum valdafíklum, kerfið af þiggjendum og sporgöngumönnum –
en ekki sjálfstæðum leiðtogum. Íslenski samfélagsskólinn er fámennur,
veikur og letjandi.32 Hér glímum við ekki bara við það að pólitískum
venslamennum er hyglað – smátt og smátt læra hinir að ekkert þýðir að
bjóða fram krafta sína. Við fáum ekki bara kerfi sem upphefur þá löku
heldur rekur burt þá hæfu. Niðurstaðan er rökrétt: Öll pólitík verður
persónupólitík. Ef til vill er höfuðgallinn við kenninguna um frjáls-
hyggjuhrunið að gleyma þessu grundvallaratriði í íslenskri stjórnmála-
menningu: Hún er óskiljanleg ef menn vita ekki hver er hvurs og hvurs
er hvað.33
Sagan er rík af svona dæmum: Smám saman rís hátimbrað sköffunar-
kerfi sem getur verið ákaflega ríkt í skjóli náttúruauðlinda sem virðast
óþrjótandi en er dæmt til þess á endanum að hrynja undan yfirbyggingu
forréttinda og arðráns þegar ekki verður lengra komist.