Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Qupperneq 28
G u ð n i E l í s s o n
28 TMM 2011 · 3
fylkis.15 Í bók sinni lofsyngja Ray og Guzzo þann árangur sem náðist í
baráttunni gegn malaríu með eiturefninu DDT og þar er fyrst að finna
margar af þeim rangfærslum sem einkenna skrif þrýstihópanna sem
nokkrum árum síðar ráðast á Carson af fullum þunga, en þær verða
raktar hér á eftir.
En hvers vegna leggja þessar málpípur harðlínuaflanna svo mikla
áherslu á að gagnrýna konu sem dó fyrir tæpri hálfri öld? Oreskes
og Conway setja fram þá kenningu að mikilvægt hafi verið að skaða
orðstír Carsons, vegna táknlegrar stöðu hennar sem móður nútíma-
umhverfis verndar. Árásir á hana gætu leitt til þess að ýmsar af frum-
forsendum grænu hugmyndafræðinnar yrðu dregnar í efa og þá hefði
henni verið greitt þungt högg.16 Með það í huga heldur frjálshyggju-
hugveitan Competitive Enterprise Institute úti vefsíðunni „Rakel hafði
rangt fyrir sér“, en þar er því haldið fram á forsíðu að sumar goðsagnir
í samtíma okkar hindri eðlilega framþróun og hafi ægilegar afleiðingar.
Ein af þessum áhrifamiklu frásögnum birtist að mati hugveitunnar í
bók Carsons Raddir vorsins þagna, og hún hafi leitt til þess að milljónir
manna þjáist og deyi úr malaríu.17
Breski dálkahöfundurinn James Delingpole, sem skilgreinir sig sem
frjálshyggjusinnaðan íhaldsmann, tekur undir þessa ásökun og segir
Carson vera svar umhverfisverndarsinna við kambódíska harðstjór-
anum Pol Pot,18 á meðan Andrew Kenny segir græningja í illverkum
sínum slá út Hitler, Stalín og Maó. Með því að framfylgja ,banninu‘ á
DDT beri þeir ábyrgð á dauða fimmtíu milljóna manna.19 Haturspistl-
arnir um Carson skipta tugum, en líklega er malaríuklukka frjáls-
hyggjumannsins Stevens Milloy alræmdasta dæmið. Þar er hægt að
fylgjast með fjölda þeirra sem sýkjast og látast vegna DDT-,bannsins‘ frá
1972, en samkvæmt klukkunni hafa rúmlega 105 milljónir manna látist
að óþörfu á síðustu fjörutíu árum, eða einn á tólf sekúndna fresti.20
Íslenskir frjálshyggjumenn hafa ekki látið sitt eftir liggja í atlögunni
gegn Carson. Fjallað hefur verið um skordýraeitrið DDT í fjölda greina í
helsta málgagni þeirra Vefþjóðviljanum og er þar allt á sömu bókina lært,
,bannið‘ við skordýraeitrinu „hefur kostað tugi milljóna manna lífið því
efnið er langbesta vörnin gegn malaríu“,21 en í huga umhverfisverndarsinna
„skipta hungur og sjúkdómar engu máli. Náttúran á að njóta vafans“.22
„Hvurslags fólk er það sem tekur eggjaskurn fram yfir mannslíf?“ spyrja
pennarnir á Vefþjóðviljanum sig.23 Ábyrgð Carsons og fylgismanna
hennar er mikil ef taka á þessi orð trúanleg. Pistlahöfundarnir á Vef-
þjóðviljanum vitna máli sínu til stuðnings í bandaríska hagfræðinginn
Thomas Sowell: „Rachel Carson og umhverfisverndarsinnarnir sem hún