Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 94

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Page 94
F i n n u r Þ ó r Vi l h j á l m s s o n 94 TMM 2011 · 3 höfðu átök okkar granna gengið nærri mér að ég megnaði það ekki. Hér varð að vinna tíma. Ég tók á því sem ég átti, tjaldaði öllu til og lét vaða með feiknlegu málþófi: sneri út úr og á haus, blés út formsatriði, tæknigalla, tímafresti, hamraði á umboðsvanda og valdþurrð, lögbærni, obskúrum lagakrókum … Ég komst ekki langt. Fulltrúinn þaggaði höstugur niður í mér. Sossoso. Vita skaltu, eybúi, að kotung og konung skilur meira en stafurinn einn. Muntu fá sannfráð það þó síðar verði. Í stjórnlist sinni og ríkisrekstri eyðir hans hátign ekki púðri í múgamenn. Máttu prísa þig sælan með þá áheyrn sem þér hefur þó veist sakir minnar meðal- göngu. Ég leit nú fyrst af nokkurri gjörhygli á kóngsmann sjálfan. Jæjajá. Heldur en ekki þykja mér fljóta hér eplin. Eða hver ert þú? Og hví hnjóðar þú mig, sjálfur landi minn, svo sem vart dylst af mæli þínum? Kóngsmaður roðnaði og ræskti sig. Hann gaut augum til hirðarinnar, gerði sér þvínæst lipurlega upp hreim, linaði og rúnnaði tunguna nær hinu konunglega hrognamáli: Aaa. Ooo, sagði hann, seimdrægur mjög og sönglinn. Víst, svoddan séð. Hef hér annað beinið. Í bland og innímillum. Annars löngu brott- fluttur. Á hér bara hýttu eða tvær. Ekkert meðalfól ertu! Gengur erinda erlends kóngs í eigin landi. Þjóðníðingur! Landeyða! Laufeyjarson! Í hvers liði ertu eiginlega, ætt- jarðar þinnar eða kúgunarvaldsins? Náðarsamlegast, ekki vera argur, svaraði hann og herti á ný áhersluna, gleymdi jafnskjótt hreimnum: Lið? Land? Atarna þykir mér meylegt kjökur, ellegar í bestan stað framtíðarmúsík, óhæfandi vorri öld. Seg mér þá, hvort knúði sá hinn sami náungakærleikur þig til að grípa um kverkar þess manns er þú áður áleist granna þinn? Það er mála sannast að nóg er komið af sífelldum skærum og nágrannaerjum hér á þessu útskeri. Tímabært jafnframt að venjulegt fólk fái notið nætursvefns fyrir þeim sturluðu friðarspillum fáeinum sem liðist hefur of lengi að ríða hér röftum. Eða hvað finnst þér um þann plagsið hérlendan að hlaða moði og hrísi að býlum og brenna með manni og mús – halda þannig fram málstað í minnstu þrætu? Ellegar tæla og trylla fákæna kotbændur úr fjarlægum landshlutum til að hervæðast, etja þeim síðan saman á víðavangi til morðs og limlestingar hver öðrum? Og til hvers? Til þess eins að héraðsdólgar og rummungar fái í huganum talið sér til ríkis fleiri móa og meli, útnes og nástrandir, örfoka heiðar, fáeina harðbýla fjalldali og hjáleigur til. Ég mótmælti kröftuglega. En hvað með tilkall vort til friðar og frelsis,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.