Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Síða 120

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2011, Síða 120
120 TMM 2011 · 3 Helgi Haraldsson Til minningar um Valerij Pavlovič Berkov (11. ágúst 1929–9. október 2010) „Það er óhugsandi að gera fullkomna orðabók, en að því ber að stefna.“ VPB Þegar Valerij Berkov varð fimmtugur, í ágúst 1977, var honum send þessi vísa: Til hamingju með hálfa öld, heillakarlinn fróði. Lifðu enn um árafjöld orðasmalinn góði. Þá átti hann 31 ár eftir ólifað. Orðasmali var Valerij Pavlovič Berkov í orðsins fyllstu og bestu merkingu. Hann var tvímælalaust meðal fremstu orða- bókafræðinga heims, ef ekki sá allra fremsti. Þannig er með flesta þá sem lexikografíu stunda að annaðhvort skrifa þeir og setja fram fræðilegar kenningar um orðabækur, eða semja orðabækur. Valerij gerði hvorttveggja. Frumraun hans á því sviði var Íslenzk-rússnesk orðabók, sem kom út í Moskvu árið 1962. Svo kom mikil rússnesk-norsk orðabók 1987; hann ritstýrði stórri norsk-rússneskri orðabók sem birtist 2003. Rússnesk-norsk orðabók yfir fleyg orð kom árið 1988 sem og rússnesk orðatiltæki í myndum, hann átti aðild að Russian-English dictionary of winged Í s l a n d s v i n a m i n n s t words (1984). Bækur hans (um 20 tals- ins) og greinar með fræðilegri umfjöllun bæði um orðabókarfræði, orðfræði (lex- ikológíu) og málvísindi almennt nálgast hundraðið, þ.á m. kennslubók í norskri orðfræði sem hann svo þýddi á norsku, yfirgripsmikil lýsing allra germanskra nútímamála, jiddíska og afrikaans ekki undanskilin. Hlutur íslensku í þeirri bók er ekki umkvörtunar efni. Það er mikið mein að hún skuli ekki hafa verið þýdd á aðgengilegar tungur.1 Auk þess samdi hann mörg kennslu- gögn fyrir nemendur í norrænum mál- um og almennum málvísindum. Helstu æviatriði þessa merka fræði- manns og Íslandsvinar eru þessi: Pavel Naúmovič Berkov og fjölskylda hans – konan Sofja Mikhajlovna og son- urinn Valerij Pavlovič – voru meðal þeirra heppnu sem tókst að flytja frá Leningradborg eftir að umsát Þjóðverja um borgina hófst. Umsátin stóð í 900 daga. Rösklega ein miljón manns svalt í hel2. Bókmenntafræðingnum Pavel Berkov stóð til boða kennsla við ýmsa háskóla og valdi kennaraháskólann í Frúnze (nú Biškek), höfuðborg Sovétlýðveldisins Kirgisistans (Kirgisíu) á landamærum Kína og Sovétríkjanna, en háskólinn var fluttur til smábæjarins Przhevalsk, sem lá fjórum sinnum nær kínversku landa- mærunum en næstu járnbrautarstöð, því að stríðs reksturinn þurfti á húsnæði hans í Frúnze að halda. Þarna var ekkert rafmagn, engin vatnsveita né almenn- ingsfarartæki. Hins vegar bókasafn sem pilturinn Valerij stundaði grimmt. Í skólanum lærði hann þýsku, lagði sig eftir tungumáli landsmanna (kirgisíska
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.