Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Blaðsíða 11
V í s i n d i o g v i s k a J a r ð a r
TMM 2012 · 2 11
Skynsemin streymir fram þegar rökhugsun og tilfinningar blandast. Sé þetta
tvennt að skilið hnignar hugsuninni og hún verður geðsýki að bráð og tilfinn
ingunum hnignar líka og þær verða að taugaveiklun og lífshættulegri ástríðu.
Erich Fromm (1900–1980).
Þýskur sálfræðingur, heimspekingur og lýst sem lýðræðislegum sósíalista.
Þýðing: Guðmundur Andri Thorsson 2010.
Í þessu heimildaverki eru vísindi leiðarstef í hinni miklu hljómkviðu Jarðar.
Til þess að hljómkviðan ómi skýrar er reynt að flétta inn í leiðarstefið ýmsum
öðrum fróðleik, sem einnig er hluti af heildarmynd og á að virka sem mynd
rænar, heimspekilegar, þjóðsögulegar og siðferðislegar bakraddir – en þær
eru samt ekki hljómkviðan öll, til dæmis vantar fuglasöng, vindgnauð, öskur
eldfjalla, fossanið og öldugjálfur … Ef til vill mun maðurinn aldrei þroskast
svo að hann öðlist heildarsýn á Móður Jörð en hann getur sannarlega komist
nær því marki. Til þess þarf hann ekki að leggja mikið á sig en hann þarf
bæði að vita hver hann er og vanda sig betur við að lifa.
Fáir hafa útskýrt heildræna hugsun, einstaklingseðlið, betur en svissneski
sálfræðingurinn Carl Gustav Jung (1875–1961). Hann áleit skýrast að nota
austræna alheimshjólið, mandala, sem táknmynd fyrir huga mannsins og
skilgreindi þar fjóra meginþætti á tveimur ásum. Í einfaldri mynd þess
arar kenningar byggir annar ásinn á skynsemi; hinn á órökrænni skynjun.
Skynsemismegin er hugsun og tilfinning. Athugið að tilfinning er skilgreind
sem skynsemi. Á hinum órökræna ási er skynjun og innsæi.
Hugsun byggir á rökhugsun. Hún túlkar hlutina.
Tilfinning metur aðstæður og fyrirbæri.
Skynjun og innsæi aðvara okkur án þess að túlka eða meta aðstæður.
Þessi fjórfalda skilgreining heildstæðrar hugsunar er ekki aðeins kenn
ing Jungs heldur á hún hliðstæður víða, svo sem í heimi himalæjabúdd
ista, hindúa á Indlandi og frumbyggja NorðurAmeríku. Og með því að
iðka heildstæða hugsun dagsdaglega og í öllum okkar athöfnum tökum við
ákvarðanir sem eru vandaðri en áður og byggja ekki aðeins á þekkingar
brotum heldur á djúpstæðari hugsun þar sem innsæi, tilfinning og siðferði
fær sess.
Maðurinn glímir við ótal fortíðardrauga. Hann hefur verið ógæfusamur og
lent í miklum villum. Verst var að missa sýn á lifandi Móður Jörð. Með því
glataði hann sambandi við sjálfan gangráð lífsins. Hann skildi æ minna í
heildarsamhenginu og tók að fúska við að vera „herra Jarðarinnar“, breyta
vistkerfum Jarðar eftir sínu höfði án heildarskilnings á gerðum sínum.
Ekki hefur verið hlustað á varnaðarorð um mengun, eyðingu búsvæða og
afleiðingar óheftrar röskunar vatnafars og augunum hefur verið lokað fyrir
öllum þeim risavandamálum sem herja nú á heim lífsins af síauknum þunga.
Því ef litið er til stærðfræðilegrar smættunar – þá eru heldur engin vandamál
sýnileg, aðeins tölur.