Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Side 77
Ú r D a g b ó k u m M a t t h í a s a r TMM 2012 · 2 77 í sjúkdómagreiningum og þótt hann hafi reynt að malda eitthvað í móinn í byrjun gafst hann upp á því og aumingjaskapur minn og heilsuleysi urðu honum áreiðanlega meira umhugsunarefni en elli hans. Annars erum við báðir ágætlega á okkur komnir, bætti ég við og hann neitaði því ekki. Þá sagði ég, Nú skulum við fara að eldast afturábak eins og Þórbergur sagði. Ha, Þórbergur, sagði þá Hannes, hann sagði svo margt – og átti þá við að Þórbergur hefði sagt svo marga vitleysu að ekki væri ástæða til að tíunda það. Eigum við þá ekki að hittast einhvern tíma í kaffi, sagði ég. Ja, sagði Hannes, ég fer nú eiginlega aldrei í bæinn, nema þá helzt í jarðar­ farir en það getur þá verið að einhver útförin verði tilefni til þess! Svo kvöddumst við þarna við kirkjuna. Þá var hann kominn með konuna upp á arminn. Hún var mjög fín með barðastóran hatt. Ég horfði á eftir þeim og hugsaði með mér hvað það hefði verið gott hljóð í Hannesi og gaman að hitta hann. Þegar við komum í Hótel Sögu sagði ég þeim Sveini og Jóhannesi Nordal frá þessu. Þá sagði Jóhannes, Hvenær fór þetta samtal ykkar fram? Eftir jarðarförina, sagði ég. Núna rétt áðan? spurði Jóhannes. Já, sagði ég. Það hlaut að vera sagði Jóhannes og brosti því ég hitti Hannes og það lá svo ljómandi vel á honum. Hann hafði gjörsamlega kastað ellibelgnum – eða þú hefur kastað honum fyrir hann!¨ Þannig fór nú þessi fallega útför Andrésar Björnssonar fram, með höfð­ inglegri reisn eins og efni stóðu til. Og það var við hæfi að Hannes Pétursson skyldi loksins koma í leitirnar. 9. febrúar, föstudagur Bauð klíkunni í kvöldverð niður á Morgunblað. Það var góð stund, að venju. Indriði G. leit betur út en oft áður. Ég sé hann er sem betur fer hættur við að berja nestið. Hann sagði að tvær aldir Íslandssögunnar væru einskonar eftirmynd hvor af annarri, það væri þjóðveldistíminn eða öllu fremur Sturlungaöldin og 20. öldin. Flokkadrættir hefðu verið með svipuðum hætti, þó án manndrápa á hinni síðari. Hann hefur leitað að framsóknarmann­ inum á sturlungaöld og fundið Ingjald á Keldum: Allir voru þar óvinir Njáls – nema Ingjaldur á Keldum, eins og segir í húsganginum. Ég benti honum á að Ingjaldur á Keldum hefði ekki verið uppi á 13. öld, heldur hefði hann verið samtímamaður Gunnars og Njáls og annarra sögualdarmanna. Indriði sagði að það væri að vísu rétt, en hann væri afkvæmi Sturlungaaldar. Höf­ undur hefði fundið hann í samtímanum. Það má vera, þannig eru skáldverk oft skrifuð. Ingjaldur vissi um aðförina að Njáli en gat ekki sagt honum frá henni án þess að svíkja vini sína. En hann gaf honum hættuna í skyn með því
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.