Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 80

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Page 80
M a t t h í a s J o h a n n e s s e n 80 TMM 2012 · 2 Það skiptir svo sem ekki máli fyrst maður getur hlaupið frá því þarna í draumnum og látið sem ekkert sé. En ekkert tilefni var til þessa draums, svo ég viti, og bezt gæti ég trúað að ljónin og tígrisdýrin væru einfaldlega rándýrin í minni eigin sál; rándýr undirvitundarinnar; rándýrin sem hver maður þarf að glíma við og temja en tekst misjafnlega. 2. janúar, sunnudagur Í fyrramálið skreppum við líklega austur á Selfoss og fáum okkur síðdegis­ kaffi. Steingeitin ætlar að flýja afmælið sitt, það er henni líkt. Það er líka komið nóg af afmælum. Þegar ég var drengur hélt ég yfirleitt ekki upp á afmælið mitt. Þó man ég eftir afmælinu þegar ég var fjórtán ára, 3. janúar 1944. Þá fór ég með pabba og Gústa Mark á Blóð og sand. Hún var bönnuð innan 14 ára, svo ég var löglegur bíógestur. Það var einn mesti áfangi æsku minnar. Svona rómantískur harmleikur átti vel við mitt rómantíska upplag. Samt er ég allra manna hversdagslegastur, hvernig getur þetta eiginlega farið saman? Einkennilegt hvernig náttúran fer að því að búa til mann, allt notað – og svo vex hann úr andstæðum sínum og verður allur í dauðanum. Loksins þá! 3. janúar, mánudagur Logn veðurs, bjart. Fjögurra stiga frost. Trén í garðinum eins og eilífðin, haggast ekki. Fuglarnir flögra við himin. Það gerist ekkert, það hefur aldrei neitt gerzt. Stórt hvítt ský í suðri eins og heilagur andi sé að búa sig undir nýja til­ skipun á nýrri öld. Kvöldið Skruppum uppúr hádegi austur á Selfoss. Það var hríð í Reykjavík en fagurt og bjart veður fyrir austan. Á heimleiðinni skall hann á með hríðarkófi. Tókum upp konu sem þurfti að komast til Reykjavíkur. Það kom í ljós að hún hafði verið gift bróðursyni Ragnars í Smára, syni Gísla Jónssonar í Mundakoti. Konan var kurteis, en sérkennileg. Hún sagði að móðir Ragnars hefði aldrei farið út fyrir sýslumörkin, hún hefði heitið því ung og staðið við það. Hún sagði einnig að Gísli, tengdafaðir sinn, hefði fengið rýrnunar­ sjúkdóm. Það vissi ég reyndar. Ég sá hann einu sinni fyrir margt löngu, hann var rýr og tálgaður, en bar sig vel. Konan sagði að Gísli hefði látið binda á sig ljáinn. Einhverju sinni spurði kona nokkur Gísla, hvernig honum liði. Hann talaði aldrei við hana eftir það! Það var einkennilegt að hlusta á þessa ókunnugu konu sítalandi í bíln­ um þarna í hríðinni á heiðinni. Það var eins og draumur. Og svo fór hún út í Árbæjarhverfi, hvarf eins og landið í kófinu. Og gekk inní veru­ leikann, kaldan og hryssingslegan. Minnti á manninn sem Ragnar tók upp á Hellisheiði, sællar minningar. Hann var með hnakk. Þegar þeir komu til
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.