Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Blaðsíða 82
82 TMM 2012 · 2
Úlfhildur Dagsdóttir
Myndasöguundur í Múmíndal
„Hvað er þetta?“ stendur í fyrsta rammanum. Myndin sýnir landslag og það
er næstum eins og kringlótt sólin sé að setjast í grasið – nema hún er með
rófu.1 Hægra megin við kúluna er dálítið undrandi smádýr sem hallar sér
fram eins og til að sjá betur. Við vitum auðvitað alveg hvað þetta er, enda
kemur það í ljós strax í næsta ramma, þegar múmínsnáðinn stendur upp og
svarar: „Þetta er ég, múmínsnáðinn, að reyna að standa á haus!“ Smádýrið
fellur aftur fyrir sig í undrun og hallar sér upp að háum grasstráum sem
skilja þennan ramma að frá þeim næsta, en þar segir múmínsnáðinn feginn,
„Guði sé lof, hér kemur Snabbi!“ Þegar Snabbi nálgast grípur múmínsnáðinn
um höfuðið á sér og segir: „Snabbi! Heima hjá mér eru 15 gestir og ætt
ingjar. Og ég er komin með hræðilegan hausverk vegna þessa!“ „Aumingja
drengurinn!“ svarar Snabbi.
Svona er lýsingin á fyrstu myndasögustrípu Tove Jansson um múmínálfana
sem birtist í breska dagblaðinu London Evening News árið 1953. Það verður
strax ljóst að þetta er eitthvað aðeins ólíkt þeim múmínheimi sem birst hafði
í bókunum og það verður svo enn ljósara þegar á líður fyrstu söguna, en
hér býr múmínsnáðinn einn í húsi, foreldrar hans eru víðs fjarri. Snabbi er
heldur ekki allur þar sem hann er séður, í stað þess að vera frekar meinlaus
(en sjálfselsk) gunga er hann gírugur (og sjálfselskur) plottari sem myndar á
stundum bandalag með Stink. En Stinkur er góðkunningi lögreglunnar.
Í kjölfar vinsælda fyrstu múmínbókanna var Tove Jansson beðin að skrifa
múmínmyndasögur fyrir fullorðna, til birtingar í London Evening News.
Jansson sló til og myndasögurnar slógu í gegn og voru fljótlega seldar til
fjölda annarra landa. Árið 1960 tók yngri bróðir Tove, Lars, við keflinu, en
þá var hún orðin þreytt á því álagi sem fylgdi því að birta myndasögustrípu
daglega. Lars hafði frá upphafi unnið með systur sinni að sögunum, bæði
sem þýðandi og höfundur, og reyndist afar verðugur arftaki hennar. Hann
átti svo eftir að skrifa og teikna múmínmyndasögur næstu fimmtán árin.
Myndasögurnar voru gefnar út á sænsku í litlum ódýrum kiljum frá árinu
1994,2 en árið 2006 hóf kanadíska myndasöguútgáfan Drawn & Quarterly
nýja heildarútgáfu í vönduðum og hávöxnum harðspjaldabókum. Allar
sögur Tove eru komnar út í fimm bindum og fyrsta bindið af sögum Lars.
Eins og fram hefur komið eru ævintýri múmínálfanna aðeins öðru