Tímarit Máls og menningar - 01.09.2012, Qupperneq 114
Á s t r á ð u r E y s t e i n s s o n
114 TMM 2012 · 2
tíðarvitund sem sjá má í mörgum ljóða hans: Er hægt að staðfesta mörk eða
skil milli líðandi stundar og minninga um liðna tíð? Síðast en ekki síst er
þetta spurning um raunveruleg endimörk lífsins. Hver skyldi verða manns
síðasta stund – og hvar – og í hvaða skilningi býr sú stund þegar innra með
manni? Hlýtur dauðinn ekki að vera óhjákvæmilegur ferðafélagi, og oftar en
ekki brýn áminning um vægi lífsins í bráð og lengd og um gildi þeirra staða
þar sem við stöldrum við eða hreiðrum um okkur?
Slíkar spurningar leita á hugann nú þegar blaðað er í ljóðabókum Jón
asar og staðar numið í „Alpaþorpi“. Þetta ljóð er til merkis um að Jónas
hafði myndað lífrænt samband við nýjan stað. Fyrst eftir að hann og kona
hans, Álfheiður Hanna Friðriksdóttir, fluttust til Ítalíu hafði hann ekki
fundið staðfestu þar, en þegar þau færðu sig um set, norður að Alparótum,
á vatnasvæðið í Comohéraði (nánar tiltekið til smábæjarins Canzo), komst
hann í takt við umhverfið. Þar undi hann sér afar vel síðustu árin og þar lést
hann á liðnu sumri, langt um aldur fram, 52 ára að aldri. Jónas var sjó og
vatnagarpur og dauðann bar að skyndilega í einu þeirra vatna þar sem hann
naut þess að lauga sig og synda. Þótt hann væri afar hraustlegur maður, átti
hann við vissan heilsubrest að stríða og hafði lengi vitað að lokastundin gæti
komið fyrirvaralaust. Í þeim skilningi bar hann endalokin í sér á allt að því
áþreifanlegan hátt; sérhver dagur var nýtt líf.
Á bersvæði
Jónas hafði gengið frá nýrri ljóðabók er hann lést og nefndi hana Brot af
staðreynd. Hún kemur út um svipað leyti og þessi grein birtist. Hér fylgja
heiti útgefinna ljóðabóka Jónasar (með ártölum, en einnig skammstöfunum
sem notaðar eru í greininni, ásamt blaðsíðutölum, til að heimfæra tilvitnaðar
línur):2
Í jaðri bæjarins 1989 (ÍJB)
Andartak á jörðu 1992 (AÁJ)
Á bersvæði 1994 (ÁB)
Villiland 1996 (VL)
Vasadiskó 1999 (VD)
Hliðargötur 2001 (HG)
Hvar endar maður? 2005 (HEM)
Tímabundið ástand 2008 (TÁ)
Brot af staðreynd 2012 (BAS)
Í þessum níu bókum eru tæplega 300 ljóð. Fáein þeirra höfðu áður birst í
blöðum eða tímaritum, en einnig eru til birt ljóð sem Jónas tók ekki upp í
bók, t.d. ljóðið „Í upphafi var skip“ sem sigraði í ljóðasamkeppni á menn
ingarborgarárinu 2000 og flutt var á Austurvelli 17. júní.3 Allmörg ljóða
Jónasar hafa verið þýdd á erlend mál og ein ljóðabókanna, Hliðargötur,