Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 11
G e t u r þ ú s t a ð i ð í v e g i f y r i r f r a m f ö r u m ?
TMM 2013 · 1 11
yrða að þó „tæknivæðing hafi gert afmarkaða stétt óþarfa“ hafi það samt
sem áður verið „samfélagslega hagkvæmt að auka afköst“, og því hafi and-
staða lúddítanna verið óréttlætanleg, þá tala þeir tungumál menningarlegs
þjóðarmorðs. Frekja framfaragoðsagnarinnar krefst þess að lifnaðar- og
starfshættir allra færist í einsleitt form, hagkvæmt framleiðslukerfinu.
Standi einhverjir í vegi fyrir þeirri þróun má byrja á að lofa þeim kaupauka,
bættum lífsgæðum í formi menntunar, lesskilnings, rafmagnstækja, íþrótta-
húsa og heilbrigðisþjónustu – gæðum sem eru öll háð gildismati, eins og von
Wright bendir á, og geta því með engu móti talist til framfara. Hafni þetta
sama fólk hins vegar mútunum, neiti að láta neyða upp á sig „nútímanum“ og
taki jafnvel upp siðferðislega fordæmda valdbeitingu hinna valdalausu – þá
má einfaldlega troða því í skó og þaðan í fótspor lúddítanna og gera þannig
úr því, eins og rithöfundurinn Kirkpatrick Sale tekur til orða, „táknrænan
andstæðing, sem afgreiða má sem bæði árangurslausan og óraunsæjan, hlut-
verk sem lúddítarnir voru þvingaðir til að þjóna“.18
Endalok sögunnar og samþykki Bernays
Upp úr ösku kalda stríðsins reis enn ein útgáfa kenningarinnar um endalok
sögunnar – kenningar sem Hegel, Marx og Alexander Kojève höfðu áður
sett fram, hver með sínum hætti.19 Í samhljómi við framfaragoðsögnina
gerir eftirkaldastríðsútgáfan, sem runnin er undan rifjum bandaríska
hagfræðingsins Francis Fukuyama, út á þá hugmynd að einungis ein leið
standi mannkyninu til boða – ein leið byggð á einu tilteknu gildismati og
einhliða skilningi á hinu pragmatíska. Lýsti Fukuyama því yfir að í ljósi
hruns Sovétríkjanna væri samblanda hins svonefnda frjálslynda lýðræðis
Vesturlanda annars vegar og frjálsa markaðar kapítalismans hins vegar, eina
pólitíska og efnahagslega hugmyndakerfið sem enn stæði föstum fótum í
heiminum. Engin önnur hugmyndakerfi ógni þessum kokteil né komi til
með að ógna honum og standa í vegi fyrir útbreiðslu hans um bróðurpart
heimsins. Hugmyndafræðilegum átökum sé þar með lokið, engin þörf sé
á þeim eftir útför ríkiskommúnismans, en í staðinn taki fyrst og fremst
við deilur um ólíkar, tæknilegar útfærslur á framkvæmd þessa eina eftir-
standandi hugmyndakerfis.20 Undirstöðum hins frjálslynda lýðræðis hefur
Fukuyama lýst í örfáum orðum:
Ástand það sem kemur upp við endalok sögunnar er frjálslynt að því leyti að í
gegnum lagakerfi viðurkennir það og verndar alhliða rétt mannsins til frelsis, og
lýðræðislegt að því leyti að það er einungis til fyrir tilstilli samþykkis þeirra sem er
stjórnað.21
Gleymum meintu einstaklingsfrelsi vestrænna samfélaga og horfum á sam-
þykkið sem Fukuyama er hugleikið og er í raun límið sem heldur saman
kenningu hans og annarra meðvitaðra eða ómeðvitaðra hugmyndafræðinga