Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 27

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 27
S í ð u s t u d a g a r G ú m m í -Ta r z a n s TMM 2013 · 1 27 höfða bæði til hinna fullorðnu kaupenda og neytendanna: barnanna. Fyrstu fimm bækur hans líktust seríu þegar þær stóðu saman í hillunni og aðeins mynd á kápu og litir voru mismunandi. Þessi mikla áhersla á notendavæna hönnun fór í taugarnar á honum. Af þessum ástæðum lét Ole talsvert að sér kveða þegar kom að hönnun og umbroti Gúmmí-Tarzans (1975). Hann vildi brjótast út úr skapalóninu. Bókin var í minna broti en hinar, með heildarlit sem náði yfir alla kápuna. Gúmmí-Tarzan var listilega þétt saga þar sem flóknar senur voru dregnar upp með örfáum orðum. Nostur Ole við þéttingu texta náði nýjum hæðum, frásagnaraðferðin nálgaðist myndasöguformið með talblöðrum, örvum og fjölbreyttri týpógrafíu. Ritstjórn Gyldendal rambaði á barmi taugaáfalls þegar höfundurinn heimtaði að öllum löngum orðum yrði skipt upp með svífandi punkti. Slíkt hafði ekki sést áður og þótti fulltilraunakennt. En Ole gaf sig ekki. Ekki heldur þegar þýski útgefandinn vildi breyta end- inum sem honum þótti allt of sorglegur. Bókin endar á því að söguhetjan er komin á sama stað og í upphafi bókar, aftur orðin að vesalingi eftir að hafa verið sterkari en Tarzan. Þetta þótti fullþungur boðskapur fyrir unga þýska lesendur eftirstríðsáranna. Þessu svaraði Ole með þeim orðum að þýska útgáfan yrði þá bara að frestast um sinn því það kæmi ekki til greina að skrifa hamingjuríkan endi. Það kæmi engin góð norn og hjálpaði til ef maður kynni ekki að lesa. Það yrði alltaf hörkupúl að læra það en ef fólk hjálpaðist að þá hefðist það kannski – en ekki undireins. Ole leyfði sumsé engar málamiðlanir og bókin kom út á þýsku þrátt fyrir allt. Gúmmí-Tarzan varð seinna meir langþekktasta verk Ole Lund Kirkegaard. Tvær bíómyndir hafa verið gerðar eftir henni, nú síðast þrívíddarteiknimynd sem varð að heita Gúmmí-T (2011) vegna einkaréttar Disney á vörumerkinu Tarzan. Um það leyti sem Gúmmí-Tarzan kom út var ég að leita að myndasögum í fornbókabúð við Trianglen. Eða hímdi á bókasafninu beint á móti ameríska sendiráðinu og las Tinna og Ástrík á dönsku og allt sem kom út eftir Ole Lund, auk bannaðra frásagna af hroðalegum glæpum, myndskreyttra með máðum svarthvítum ljósmyndum. Íslensku las ég ekki en pabbi las fyrir mig Grettissögu, Sálminn um blómið og Góða dátann Svejk. Þess utan var ég að leika mér við hina krakkana í húsinu, njósna um allsbera hippakommúnu uppi á lofti, skrúfa niður nafnaskilti og fela þau eða stríða húsverðinum þangað til hann elti okkur öskrandi út á götu. Tilvera okkar barnanna var speglun á bókum Ole Lund um Albert og Virgil litla. Og á hverju horni leyndist Fúsi froskagleypir í gervi stórhættulegra síðhærðra manna í leðurjökkum sem við kölluðum „Rokkara“. Flóðhestur á heimilinu (1978) var síðasta bókin sem kom út eftir Ole meðan hann lifði. Þetta átti upprunalega að vera myndabók því Ole hafði dreymt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.