Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 73

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 73
A f v e r k u m o g k ö n g u l ó m TMM 2013 · 1 73 Hin hugsaða skáldsaga Musils nær líka að stækka viðfangsefnin meira en áður hafði þekkst; þaðan í frá er ekkert hugsanlegt útilokað í list skáld- sögunnar. 17 Þegar ég var þrettán eða fjórtán ára sótt ég tíma í tónsmíðum. Ekki vegna þess að ég væri svona sérlega hæfileikaríkt barn heldur vegna varfærinnar umhyggju föður míns. Þetta var í stríðinu og vinur hans, tónskáld af gyðingaættum, varð að bera gulu stjörnuna; fólk var farið að forðast hann. Faðir minn vissi ekki hvernig hann ætti að tjá honum stuðning sinn, en datt einmitt þá í hug að fá hann til að kenna mér. Á þessum tíma voru íbúðir gyðinga gerðar upptækar og tónskáldið hrökklaðist sífellt á nýjan stað, minni og minni, og endaði, rétt áður en hann var fluttur í útrýmingarbúðirnar í Terezín, í mjög þröngu húsnæði þar sem fólk hafði troðið sér í hvert skúma- skot. Í hvert sinn sem hann flutti tók hann með sér litla píanóið sitt sem ég lék hljómfræði- og fjölraddaæfingarnar mínar á en allt í kringum okkur var ókunnugt fólk við iðju sína. Það sem stendur eftir af þessu öllu er aðeins aðdáun mín á honum og þrjár eða fjórar myndir. Einkum þessi: þegar hann var að fylgja mér út eftir tímann nam hann staðar úti við dyrnar og sagði skyndilega: „Margir kafl- arnir hjá Beethoven eru furðulega slappir. En það eru slöppu kaflarnir sem auka enn gildi sterku kaflanna. Þetta er eins og grasflöt sem er nauðsynleg til að við náum að njóta fallega trésins sem vex á henni.“ Undarleg hugmynd. Og það er enn undarlegra að ég skuli muna hana enn. Kannski hefur mér fundist það heiður að meistarinn skyldi trúa mér fyrir játningu, leyndarmáli, miklum klækjum sem aðeins innvígðir fá að vita um. Hvað um það, þessi stutta hugleiðing meistara míns á þessum tíma hefur fylgt mér alla ævi (ég hef varið hana, ég hef barist gegn henni, ég hef aldrei getað bælt hana niður); án hennar hefði þessi texti alveg örugglega aldrei verið skrifaður. En það sem mér þykir enn vænna um en þessa hugleiðingu sem slíka er myndin af manninum sem hugleiðir upphátt vandann að semja listaverk, fyrir framan barn, skömmu áður en hann lagði af stað í sitt hryllilega ferðalag. Þessi grein er hluti bókarinnar Svikin við erfðaskrárnar (1993) og er hér birt með góðfúslegu leyfi höfundarins. Friðrik Rafnsson þýddi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.