Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Síða 96
S i g u r ð u r A . M a g n ú s s o n
96 TMM 2013 · 1
Fræðimenn hafa skrifað feiknin öll af
bókum um Dodgson/Carroll. Lewis Carroll
Societies eru starfandi í Lundúnum, Dares-
bury (fæðingarbæ Carrolls), Bandaríkjunum
og Ástralíu, að ekki sé minnst á Alice Society
í Oxford. Bókin um Alice seldist í gríðar-
stórum upplögum og var þýdd á fjölda tungu-
mála, meðal annars margþýdd á íslensku, til
dæmis af Þórarni Eldjárn (Mál og menning
1996).
Fyrsta íslenska þýðingin mun hafa komið
út 1937, en þýðanda ógetið. Árið 1954 kom
út þýðing Halldórs G. Ólafssonar. Tveimur
árum síðar birtist nafnlaus þýðing í Sigildum
sögum. Síðan liðu 30 ár þartil þýðing Ing-
unnar E. Thorarensen birtist 1984.
Ýmsir hafa velt fyrir sér, hvort Dodgson
hafi haft varhugaverðan áhuga á smámeyjum. Sennilega voru kynhvatir hans
ekki fyllilega eðlilegar. Vera má að hann hafi orðið ástfanginn af vinstúlkum
sínum. Kannski ól hann ómeðvitað í brjósti óskir um að vera lítil stúlka. Og
vafalaust leyndist með honum ófullburða ósk um að verða aldrei fullorðinn.
Kannski var það skýringin á að hann gat samið ævintýrið um Alice. En sér-
fræðingar eru samdóma um að hann hafi aldrei beitt kynferðislegri áreitni
eða ofbeldi.
Samt er eitt dularfullt atvik sem aldrei hefur fengist viðhlítandi skýring
á og átti sér stað sumarið eftir hina sögufrægu skemmtisiglingu, þegar
Dodgson kom einsog venjulega og stakk uppá nýrri siglingu. Þá sagði móðir
telpnanna þvert nei. Sá tiltekni dagur er horfinn úr dagbók Dodgsons. Ein-
hver (kannski ættingi eftir fráfall hans 1898) hefur klippt blað úr dagbókinni
og reynt að breyta texta næstu blaðsíðu, svo breytingin sæist ekki. Frá þeim
degi koma hvorki Alice né systur hennar fyrir í dagbókinni mánuðum
saman. Frú Liddell fargaði sömuleiðis öllum bréfum sem Alice fékk frá
Dodgson. Hvað hafði komið fyrir?
Um það eru ýmsar kenningar. Til dæmis sú að frú Liddell, sem sögð
var snobbuð, hafi móðgast útaf einhverjum álitshnekki sem hún taldi sig
verða fyrir. Önnur kenning er sú að Dodgson hafi dirfst að biðja um hönd
dótturinnar, þegar hún hefði aldur til (sem var ekki ótítt á þeim árum), og
fengið afsvar. Sannleikann í því máli fáum við seint eða aldrei að vita.
Alice Liddell – Lísa í Undra-
landi.