Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Side 100

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Side 100
S t e i n u n n H e l g a d ó t t i r 100 TMM 2013 · 1 Andlit flugmannsins er grafískt í skuggunum og birtunni frá mælaborðnu þegar hann kallar hressilega aftur fyrir sig og spyr hvort ekki sé allt í lagi. – Ég held að ég hafi verið að missa hann, svara ég og skammast mín þegar ég finn að mér liggur við gráti. Mér finnst ég vera alein og ég er óendanlega þreytt þar sem ég sit köld og dofin og dotta við hlið Jóns sem lagði af stað í þessa ferð sem maður en endaði hana sem lík. Þegar vélin lækkar flugið hrekk ég upp og stari á stækkandi ljósin á flugbrautinni. Rígheld mér í þau með augunum þar til við erum lent. Sjúkrabíll kemur fljótlega að flugvélinni. Bílstjórarnir eru reffilegir ná- ung ar sem greinilega kannast við flugmanninn og þeir tala glaðlega saman. Þegar ég nálgast þagna þeir og horfa á mig með ógeði. – Eruð þið að koma að vestan? spyr annar bílstjórinn svo kurteislega og reynir að láta ekki augun flökta frá mér. – Já, en hann dó því miður á leiðinni, svara ég. Það kemur hik á þá. – Ja, við erum ekki í líkflutningum, segja þeir og líta hvor á annan. Mér verður ljóst að ég stend ein ásamt mínu líki á flugbrautinni í hríðarbyl um miðja nótt. Ég reyni að nota síðustu orkuna í smá vingjarnlegheit. – Þið mynduð nú kannski redda þessu fyrir mig í þetta skiptið? segi ég smjaðurslega. Ég meina, þið eruð komnir hingað hvort eð er …?? – Heyrið þið, ég þarf að fá börurnar aftur með norður! grípur flugmaðurinn fram í um leið og hann hnusar út í loftið og horfir pirraður á óhreinindin. – Æ, fyrirgefðu, hann kastaði upp á leiðinni, segi ég ósjálfrátt afsakandi. Hann hnussar eitthvað um leið og við færum börurnar saman. Með sam- stilltu átaki vippum við máttlausu líkinu á milli og eftir að flugmaðurinn er farinn að þrífa börurnar, geðvondur og tautandi, sný ég mér aftur að sjúkraflutningamönnunum sem samþykkja með semingi að leysa þennan vanda minn. Ég stekk fegin inn í flugvélina eftir töskunni minni og sest svo hjá líkinu aftur í sjúkrabílnum. Þeir renna hurðinni á eftir okkur og loka með smelli. Það er ekki lengi gert að keyra á Landspítalann sem tekur á móti okkur eins og upplýst ættaróðal í myrkrinu. Bílstjórarnir rúlla börunum snaggaralega inn fyrir dyrnar og ég hálfhleyp á eftir. Allt í einu eru allir horfnir og ég stend ein eftir á ganginum með börurnar. Ég lít á úrið og sé að klukkan er hálffjögur. Það er kominn 24. janúar. Dánardægur Jóns. Ég horfi á auða gangana í kringum mig og verð allt í einu meðvituð um að það er æla á jakkanum mínum og einnig á tepp- inu sem breitt er yfir líkið við hliðina. Línvagn stendur í horninu við enda gangsins og ég gríp þar lak og breiði varlega yfir börurnar. Svo geng ég til vaktmannanna sem sitja bak við rúðu nálægt útidyrunum og banka í glerið. Þeir líta syfjulega upp. – Ég var að koma úr sjúkraflugi að vestan, segi ég, en sjúklingurinn dó á leiðinni. Ég þyrfti að fá að koma honum í geymslu í líkhúsinu hjá ykkur áður en hann fer í krufningu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.