Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Qupperneq 103
TMM 2013 · 1 103
„Gestur vestfirski“
Þórbergs þáttur Þórðarsonar
Á öðrum áratug tuttugustu aldarinnar skrifaði Þórbergur Þórðarson nokkrar
gamansamar mannlýsingar – svokallaða „palladóma“ – í Skinfaxa, hið handskrifaða
tímarit Ungmennafélags Reykjavíkur (U.M.F.R.). Skinfaxi „kom út“ frá því í nóvem-
ber 1906 og þar til í maí 1918. Blaðið var lesið upp á fundum U.M.F.R. og því skal
ekki ruglað saman við hinn prentaða Skinfaxa Ungmennafélags Íslands (U.M.F.Í.)
sem hóf göngu sína árið 1909 og kemur ennþá út. Þá skal Skinfaxa U.M.F.R. ekki
heldur ruglað saman við samnefnt skólablað Framtíðarinnar, málfundafélags
Menntaskólans í Reykjavík. Það hóf einnig göngu sína sem handskrifað blað 1898 og
hefur komið út með hléum allar götur síðan, í prentuðu formi frá árinu 1968. Palla-
dómaskrif er hefð sem á rætur sínar að rekja til skólablaða og árbóka skólapilta frá
síðasta fjórðungi nítjándu aldar og var vinsæl iðja hjá þeim sem vildu æfa sig í ritlist
og ræðumennsku. Um það má lesa nánar í bók Braga Þorgríms Ólafssonar Lands-
ins útvöldu synir sem og í Sögu Reykjavíkurskóla eftir Heimi Þorleifsson. Í bókinni
Ólíkar persónur sem hefur að geyma úrval af skrifum Þórbergs Þórðarson í Skinfaxa
eru birtir nokkrir palladómar hans og sá þekktasti þeirra er vafalaust sá sem bókin
sækir titil sinn til. Þar fer Þórbergur á kostum í lýsingu sinni á ungmennafélaganum
og „boltaspilaranum“ Arreboe Clausen, sem og í samanburði á Clausen og sjálfum
sér. Sá palladómur sem hér birtist er hins vegar ekki eftir Þórberg Þórðarson heldur
um hann, eins og yfirskriftin ber með sér. Sá sem þáttinn ritaði notaði dulnefnið
„Gestur vestfirski“ en mjög mikið efni í Skinfaxa er með þeirri undirritun. Fróðlegt
væri að vita hvort einhver lesandi Tímarits Máls og menningar veit hvaða ungmenna-
félagi er þar á ferðinni. „Þórbergs þáttur Þórðarsonar“ birtist í ellefta tölublaði
Skinfaxa í september árið 1913. Í uppskrift minni hef ég leiðrétt augljósar villur og
samræmt stafsetningu, enda stafsetning nokkuð á reiki í hinu handskrifaða blaði.
Ég vona að lesendur hafi gaman af þessari aldargömlu lýsingu á Þórbergi Þórðarsyni
sem hvergi hefur birst á prenti áður, svo mér sé kunnugt.
Soffía Auður Birgisdóttir
Þórbergur heitir maður og er Þórðarson, Steinssonar, Þórðarsonar, Steins-
sonar bónda að Kálfafelli í Suðursveit í Austur-Skaftafellssýslu.1 Móðir
Þórbergs var Anna Benediktsdóttir, Þorleifssonar, Hallsson, Þorleifssonar,
bónda að Hólum í Austur-Skaftafellssýslu. Ólst Þórbergur upp með for-
eldrum sínum og varð brátt vöxtulegur, en snemma bar og á því að undar-
legur þótti hann að mörgu og ólíkur öðrum sveinum þeim er þar ólust upp.
Þá er hann tók betur að vaxa vildi faðir hans að hann tæki að ganga að
vinnu með öðru fólki en Þórbergur lét sér lítið um gefið, smíðaði hann í