Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Page 111
TMM 2013 · 1 111 „Bisnissmaður eða ævintýrafugl“ Steinar Sigurjónsson og útgefendur Þorsteinn Antonsson tók saman „Það er óþolandi að þurfa að skríða upp í skeggið á þessum mönnum til að koma frá sér bók.“ Þessi ummæli eru höfð eftir Steinari Sigurjónssyni skáldi. Við vorum nokkur saman heima í stofu á Vífilsgötu 11 einhvern tíma á árunum um 1990, og hann var hér að tala um íslenska bókaútgefendur. Eftirfarandi bréf eru úr bréfasöfnum Steinars sjálfs og Ragnars Jónssonar útgefanda og eru öllum opin á Handritadeild Landsbókasafns Íslands. Þau eru milli hans og útgefendanna og ritstjóranna Ragnars í Smára, Valdi- mars Jóhannssonar, Sigurðar A. Magn ússonar, Indriða G. Þorsteinssonar, Ólivers Steins og Jóhanns Páls Valdi mars sonar. Samantektin er gerð einkum til gamans, en er einnig til þess fallin að varpa frekara ljósi á höfundarferil þessa sérstæða höfundar sem nærri lét að persónugerði með bóhemlífi sínu á árunum um 60–92, er hann lést, tímabil í íslenskri bókmenntasögu sem hvorki er hægt að kenna við sveit né borg, en helst við formleysi og óskapnað, svo í athöfn sem orði. Bréfin vitna um samskipti Steinars við útgefendur frá útgáfu Ástarsögu hans 1958, upphafi höfundarferilsins eða því sem næst, og fram til þess er við kunningjar hans tveir, ég og Matthías Viðar Sæmundsson, reyndum að vekja athygli á honum sam- eiginlega með útvarpsþætti í RÚV árið 1991. Steinar skrifar Ragnari í Smára vegna Ástarsögu, nýútkominnar: Reykjalundi 25/2 59. Ragnar. Geri ráð fyrir að þú sért ábyrgur fyrir birtíngu á mynd af mér vegna auglýsíngar á bók minni í Helgafelli. Ég hef að vísu ekki á móti því að bók mín seljist og um hana verði rætt af sanngirni en ég kæri mig ekki um að vera myndaður fyrir alþjóð og þar með að verða fyrir ónæði glápandi spyrjandi fólks á förnum vegi. Ég er vinnumaður sem þarfnast friðar og næðis og fyrir- lít allt skrum og hégóma í sambandi við verk mín. Þess vegna banna ég þér hér með að birta af mér myndir á prenti eða útvega öðrum til birtíngar. (Eða hvar skyldi þessi mynd hafa komið í leitirnar? Furðulegt! Einhver hefur farið snuðrandi eftir henni annaðhvort til frænku minnar vestur í bæ eða alla leið til Akraness! Hugsa sér!) Steinar er með skáldsögu og ljóðabók tilbúna til útgáfu nokkrum árum síðar en er í vafa um útgefanda þegar hann skrifar Ragnari:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.