Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Síða 111
TMM 2013 · 1 111
„Bisnissmaður eða ævintýrafugl“
Steinar Sigurjónsson og útgefendur
Þorsteinn Antonsson tók saman
„Það er óþolandi að þurfa að skríða upp í skeggið á þessum mönnum til að koma
frá sér bók.“
Þessi ummæli eru höfð eftir Steinari Sigurjónssyni skáldi. Við vorum nokkur saman
heima í stofu á Vífilsgötu 11 einhvern tíma á árunum um 1990, og hann var hér að
tala um íslenska bókaútgefendur. Eftirfarandi bréf eru úr bréfasöfnum Steinars sjálfs
og Ragnars Jónssonar útgefanda og eru öllum opin á Handritadeild Landsbókasafns
Íslands. Þau eru milli hans og útgefendanna og ritstjóranna Ragnars í Smára, Valdi-
mars Jóhannssonar, Sigurðar A. Magn ússonar, Indriða G. Þorsteinssonar, Ólivers
Steins og Jóhanns Páls Valdi mars sonar. Samantektin er gerð einkum til gamans, en
er einnig til þess fallin að varpa frekara ljósi á höfundarferil þessa sérstæða höfundar
sem nærri lét að persónugerði með bóhemlífi sínu á árunum um 60–92, er hann lést,
tímabil í íslenskri bókmenntasögu sem hvorki er hægt að kenna við sveit né borg, en
helst við formleysi og óskapnað, svo í athöfn sem orði.
Bréfin vitna um samskipti Steinars við útgefendur frá útgáfu Ástarsögu hans 1958,
upphafi höfundarferilsins eða því sem næst, og fram til þess er við kunningjar hans
tveir, ég og Matthías Viðar Sæmundsson, reyndum að vekja athygli á honum sam-
eiginlega með útvarpsþætti í RÚV árið 1991.
Steinar skrifar Ragnari í Smára vegna Ástarsögu, nýútkominnar:
Reykjalundi 25/2 59.
Ragnar.
Geri ráð fyrir að þú sért ábyrgur fyrir birtíngu á mynd af mér vegna
auglýsíngar á bók minni í Helgafelli. Ég hef að vísu ekki á móti því að bók
mín seljist og um hana verði rætt af sanngirni en ég kæri mig ekki um að vera
myndaður fyrir alþjóð og þar með að verða fyrir ónæði glápandi spyrjandi
fólks á förnum vegi. Ég er vinnumaður sem þarfnast friðar og næðis og fyrir-
lít allt skrum og hégóma í sambandi við verk mín. Þess vegna banna ég þér
hér með að birta af mér myndir á prenti eða útvega öðrum til birtíngar. (Eða
hvar skyldi þessi mynd hafa komið í leitirnar? Furðulegt! Einhver hefur farið
snuðrandi eftir henni annaðhvort til frænku minnar vestur í bæ eða alla leið
til Akraness! Hugsa sér!)
Steinar er með skáldsögu og ljóðabók tilbúna til útgáfu nokkrum árum síðar en er í
vafa um útgefanda þegar hann skrifar Ragnari: