Tímarit Máls og menningar - 01.03.2013, Blaðsíða 127
„ B i s n i s s m a ð u r e ð a æ v i n t ý r a f u g l“
TMM 2013 · 1 127
– Tæpum þremur áratugum – og allmörgum bókum – eftir að Valdimar Jóhanns-
son gaf út Hamíngjuskipti Steinars (1964) skrifaði sonur Valdimars, Jóhann Páll
útgefandi hjá Forlaginu, sama höfundi:
Forlagið.
22. maí 1991
Kæri Steinar!
Þakka þér skorinort og afdráttarlaus bréf þín frá 30. mars og 2. maí. Ég
svara á sama hátt.
Þú sakar mig um mörlenskan sauðarhátt. Ég gef skít í það. Það er kannski
með mig eins og fleiri mörlanda, að ég hef ærið að starfa og ófá handrit lágu
á borði mínu og biðu lestrar þegar mér barst erindi þitt. Svo þarf ég fleiru að
sinna en handritalestri og hef einnig verið á viðskiptaferðalagi erlendis. Ég
skammast mín ekkert.
Um þýðingu á franskri bók get ég ekkert sagt. Ég hef ekki lesið bókina en
vil taka það fram að nánast allar þýðingar sem Forlagið gefur út veljum við
sjálfir og eins og þú veist þá er úr nógu að velja þar, miklu fleiru en við getum
nokkurn tíma gefið út. Ég er að sjálfsögðu tilbúinn að lesa yfir handritið og
vega það og meta. Nóg um það.
Kjallarinn. Mér líst vel á þetta handrit og hef áhuga á að gefa það út. Ég
sting uppá að gengið verði frá bókinni með sama hætti og hjálagðri ljóðabók
Þórarins Eldjárns, þ.e. vandaðri kilju. Upplag ca 500 eintök. Ég hefði áhuga
á að fela sama myndlistarmanni gerð kápunnar, þ.e. Valgarði Gunnarssyni.
Hvað um það?
Ber að líta á þetta sem endanlegt handrit eða hugsarðu þér að slípa það
frekar? Er þér fast í hendi að rita k í stað h? Eflaust er þetta þrauthugsað
mál af þinni hálfu en að mínu mati stendur þetta einungis milli lesanda og
verksins. En þú átt síðasta orðið um það. Hvað með gæsalappirnar? Hvers
vegna lokar þú ekki beinni ræðu með gæsalöppum? Ef þú hugsar þér að slípa
verkið meira, hvenær myndirðu þá skila endanlegu handriti?
Ég sting upp á að rammasamningur Félags ísl. útgefenda og RSÍ gildi um
útgáfuna, þ.e. 16% höfundarlaun af útsöluverði. Samkvæmt samningnum
áttu að fá ¼ af höfundarlaunum upplagsins við skil á handriti. Ef upplagið er
500 eintök þá dragast fyrst frá 100 eintök skv. 18. gr. vegna höfundareintaka,
kynningar o.s.frv. Þá eru eftir 400 eintök. Áætlað útsöluverð er 1480 kr., 16%
af því eru 236, 80. Þá eru höfundarlaun fyrir 400 eintök 94720 og ¼ af því
23680 kr.* Ég hef þegar sent þér um 50000, þannig að ekki er um frekari
greiðslur að ræða fyrr en þrem mánuðum eftir útkomu, þá greiðast höf-
undarlaun af öllu upplaginu. Þetta er allt samkvæmt gildandi samningum en
ekki mín uppfinning. Þetta eru auðvitað ekki miklir peningar fyrir höfund
* Nmgr. bréfritarans, J.P.: Þetta er reyndar vitlaust. Hér á að standa hálfu, en látum hitt gilda fyrst
það rataði í bréfið.