Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 10

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 10
S t e i n d ó r J . E r l i n g s s o n 10 TMM 2015 · 3 Samhliða batanum hef ég á undanförnum árum gert endurteknar til- raunir til þess að koma mér aftur út í lífið. Þær hafa því miður allar liðið fyrir sömu mistökin. Ég fer allt of geyst af stað og fæ á endanum taugaáfall. Við tekur þá langur tími þar sem ég einangra mig nánast algjörlega frá umheim- inum og sleiki sárin. Þá verða sjálfsvígshugsanir aftur ráðandi afl í lífinu. Við minnsta áreiti geta þær orðið nánast óbærilegar. Nú er hins vegar ástæða til hóflegrar bjartsýni því að síðastliðinn vetur veitti athyglisverð sálfræði- meðferð mér nýtt innsæi í eigin tilfinningaheim. Það á síðan eftir að koma í ljós hvort þetta sálfræðilega innsæi nær að lifa í skúmaskotum hugans sem eru uppfull af efasemdum um hugmyndafræðilegan grundvöll geðlæknis- og sálfræði.12 Guðleg heimsókn Reynslan í Afríku gerbreytti heimsmynd minni. Ég fór utan sem tiltölulega bjartsýnn efahyggjumaður en er heim kom var ég orðinn svartsýnn (í heim- spekilegri merkingu orðsins13) guðleysingi sem aðhylltist í raun tómhyggju. Í mínum huga var allt, með vísan í Prédikarann, „Aumasti hégómi … aumasti hégómi, allt er hégómi“. Ég sá ekki neinn tilgang með lífinu, nema ef vera skyldi barneignir (í dag er ég ekki viss um réttmæti barneigna),14 og hef ekki enn fundið hann, þrátt fyrir langa og ítarlega leit. Sterk trúarleg upplifun á vormánuðum ársins 2004 lét um stund hrikta í heimsmyndinni. Allt í einu fann ég fyrir návist guðlegrar veru og bað til hennar. Þessu fylgdi mikil sælutilfinning og láku tárin úr augunum. Upplifuninni fylgdi samtímis mikil gleði og talsverður ótti. Ástæða gleðinnar var sú að ég lá inni á geðdeild illa haldinn af miklum tilfinningalegum vandamálum og sjálfs- vígshugsunum. Slæmu hugsanirnar hurfu núna óvænt. Ég hafði oft upplifað skyndilegt brotthvarf tilfinningalegu vandamálanna en þá véku þau fyrir lífsgleði, skýrri og skapandi hugsun og mikilli orku. Þessi upplifun var allt annars eðlis. Henni fylgdi mikil yfirvegun, miklu meiri sælutilfinning og sterk þörf til að orða tengslin við hina guðlegu veru. Ástæða óttans var sú að nú riðuðu allt í einu stoðir heimsmyndarinnar sem litað hafði líf mitt í einn og hálfan áratug. Ég stóð nú allt í einu frammi fyrir því að vera kominn í persónulegt samband við guðlega veru og sá fram á að verða að athlægi þegar umskiptin opinberuðust. Innst inni var þó tals- verð vissa fyrir því að heilinn væri að spila með mig en í ljósi þess hve sælutil- finningin var sterk, var ómögulegt að vera alveg viss. Hver sem ástæðan var olli upplifunin því að ég útskrifaðist mun fyrr en gert hafði verið ráð fyrir. Viku síðar var sælutilfinningin nánast algjörlega horfin. Þá fann ég að guðleysið var enn til staðar djúpt í sálartetrinu. Á sama tíma kviknaði hins vegar talsverður áhugi á trúarbrögðum og möguleikanum á því hvort hægt væri að samþætta trú og vísindi. Hafði ég ekki nokkra hugmynd um hvort og þá hvernig slíkt væri hægt. Sá heimur opnaðist hins vegar óvænt fljótlega
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.