Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 28

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 28
H j a l t i H u g a s o n 28 TMM 2015 · 3 Lesandinn kynnist henni fyrst í samfélagi fjölskyldunnar, Geira og Þórðar, verðandi tengdasonar, umhverfis píanóið þar sem Baldur leikur undir söng án „[…]snerpu, lipurð[ar] og sjálfstraust[s]“. (10) Þau dreypa á hvítvíni milli laga. Þetta er „góð stund“ sem er lýst svo: Katrín stóð beint fyrir aftan manninn sinn og veitti honum styrk til að halda hug- rakkur og ótrauður áfram leið sinni inn í myrkviði laga Jóns Múla og Fúsa. Hún hafði skærustu röddina en gætti þess að beita henni einungis til að gefa hljómnum lit, tónn hennar snerti laust við röddum allra hinna svo að loddi við þær silfur. [Leturbr. HH] (12) – – – Birtan í þessum hljómi kom frá Katrínu sem stóð í miðjunni og stjórnaði vagginu á hópnum. Frá henni kom ljóminn. [leturbr. HH] (16–17) Í útliti greinir Katrín sig frá hinum kaldranalega Ásgrími, ekki bara hvað kyn áhrærir: Hún var í rauða kjólnum. Hún hafði sett á sig ilmvatnið úr litlu grænu flöskunni og kannski gert eitthvað við hrokkna brúna hárið sem ekki hafði breyst í fjörutíu ár, frá því að hún var fimm ára, og sennilega hafði hún sett örlítinn lit á varirnar. Hún var blómleg. Á meðan hún söng hafði hún lagt langa og freknótta handleggi sína mjúklega um mjóbak dóttur sinnar og sonar og hafði þannig allan hringinn innan sinnar seilingar. Það lék bros um augu hennar og hvítar tennurnar skinu í bros- leitum söngnum og hún hallaði undir flatt eins og hún hafði gert frá því að hún var lítil stelpa. Hún var falleg. Allar hennar hrukkur voru broshrukkur. (17) – – – Hún var falleg. (20) – – – […] hún var með breiðar axlir; hún var með græn augu sem urðu gul eða grá við valin tækifæri; hún var með beint nef og sterklega höku og gullinsnið í andlits- dráttum – en þokkinn sem frá henni streymdi var umfram allt vakinn af hreyfingu, hann var leikandi lína, hann flögraði. Baldur horfði á hana og honum fannst sem allt væri rétt í niðurskipan hlutanna. (21) Katrín er hvorki ágeng og drottnandi né undirokuð og þjónandi. Í hógværð myndar hún þó grunntóninn í tilveru fjölskyldunnar en mótar líka allt umhverfi sitt: Því að rétt eins og rödd hennar snart allar hinar raddirnar í söngnum og gaf þeim silfurhljóm þá var sérhver hlutur ofurseldur sviði hennar þegar hún var þar. Ábreiða á stól tók lit sinn frá augum hennar, púði frá peysu, kaffibolli frá klút, mynd á vegg frá augum, peysu og klút – allt var baðað ljósi hennar. [Leturbr. HH] (21)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.