Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 46
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
46 TMM 2015 · 3
Norðurlöndunum skiptir mig meira máli en margt annað, bæði hvað varðar
tónlist og bókmenntir.
Þú leitar þangað fanga.
Já, það geri ég. Því meira fannfergi því meira fjör.
***
Hvað heitir maðurinn þinn og börn og hvernig hafa þau mótað líf þitt og
haft áhrif á þig?
Maðurinn minn heitir Kristján B. Jónasson og er bókaútgefandi. Hann
rekur forlagið Crymogeu sem sérhæfir sig í útgáfu ljósmynda- og lista verka-
bóka. Við eigum tvo drengi, Kristján Skírni og Hjalta Kristin. Allir hafa þeir
gert lífið mitt eilítið skemmtilegra en það var. Mig langaði í börn og ákvað
þar af leiðandi að eignast börn. Þau urðu að vera tvö.
Er ekki gott fyrir rithöfund að eiga bókamann?
Jú, og fyrir bókamann að eiga bókakonu. Við Kristján kynntumst í
bókmenntafræðinni í Háskóla Íslands. Hann þekkir bransann og veit út
á hvað starfið gengur. Hann kippir sér ekki upp við að ég þurfi að fara út
í heim að lesa upp eða að skrifa. Lengsti aðskilnaðurinn var síðasta haust
þegar ég var í Iowa City í tíu vikur.
Þú gekkst í menntaskóla, fórst svo í Háskólann, eða hvað?
Já, ég tók frönsku sem aðalfag, bókmenntafræði sem aukafag og skrifaði
BA-ritgerð um fegurðina í Les Fleurs du mal eftir Baudelaire, fór svo í
hagnýta fjölmiðlun. Mig langaði nefnilega til að verða blaðamaður eins og
hann Tinni sem við töluðum um áðan.
***
Við hvaða starf myndirðu kjósa að starfa ekki?
Ég myndi ekki vilja vera svona karl sem labbar upp og niður fjölfarnar
götur með auglýsingaskilti utan á sér.
Hvaða starf myndirðu kjósa annað en ritstörf?
Það hlýtur að vera dásamlegt að vinna á bókasafni Norræna hússins. Það
er svo fagurt.
Viltu nefna einhverja áhrifavalda?
Ég geri mér ekki grein fyrir því sjálf hvaða höfundar hafa haft áhrif á
verkin mín. Ég á mér þó minn uppáhaldshöfund en það er Norðmaðurinn
Lars Saaby Christensen. Hann er ákaflega fær og ekki við eina fjölina felldur