Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Page 49
Þ v í m e i r a fa n n f e r g i þ v í m e i r a f j ö r
TMM 2015 · 3 49
Hvað meturðu minnst í eigin fari?
Vonleysi.
Hvað meturðu minnst í fari annarra?
Undirferli.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Ferðast.
***
Viltu segja mér frá nýjustu ljóðabókinni þinni, Drápu?
Þegar ég var blaðamaður velti ég stundum fyrir mér hvort ég væri að verja
tíma mínum í vitleysu en blaðamennska er ótrúlega fjölbreytt og gefandi
starf og áratugurinn sem ég sinnti því hefur haft mikil áhrif á skáldskapinn
minn. Myndina af pabba – Sögu Thelmu hefði ég ekki skrifað nema af því ég
hafði verið blaðamaður og söguna á bakvið Drápu get ég líka þakkað blaða-
mennskunni. Ég skrifaði oft um glæpi og fór stundum inn á Litla-Hraun
að taka viðtöl við fanga. Einhverju sinni tók ég viðtal við mann sem hafði
drepið konuna sína. Hann hafði þá afplánað dóminn fyrir glæpinn en bjó
enn í húsinu þar sem hann hafði framið morðið. Það fannst mér merkilegt:
Fólk hefur jú flutt af minni ástæðu. Mörgum árum síðar veitti ég því athygli
að maðurinn hafði sjálfur verið myrtur í þessu sama húsi. Ég las mér til um
morðin og hin myrtu, leit síðan upp úr heimildunum og lét skáldskapinn
taka við. Úr varð Drápa. Mig langaði til að skrifa bók um fólkið sem lifir á
brún samfélagsins, samborgara okkar sem okkur hættir til að láta eins og séu
ekki til. Þótt Reykjavík sé fámenn borg þrífast hér heimar hlið við hlið sem
varla snertast. Ég fékk mikinn innblástur í verkið þegar ég fór á ljóðahátíð
á Samaslóðum í Noregi og heimsótti þar eyjuna Vardø. Þar ríkti mikið
galdrafár á 17. öld og voru um hundrað manns tekin af lífi fyrir galdra. Ég
komst yfir frásagnir af réttarhöldunum yfir þessu ógæfusama fólki og fannst
merkilegt að lesa mér til um hugmyndirnar sem fólk á þessum tíma hafði um
djöfulinn, útlit hans, tungutak og hegðun. Ég nýtti mér þessar upplýsingar
þegar ég samdi Drápu.
***
Hver er uppáhaldslitur þinn og blóm?
Gerberur finnst mér fallegar, uppáhaldslitur … mmm … Svart vegna þess
að hann er svo einfaldur, þá þarf maður ekki að hugsa um það meir.
Fugl?
Tjaldur.