Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 65

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 65
Þ r æ ð i r t í m a n s TMM 2015 · 3 65 Frægðin kom með fyrstu bók David Mitchell, sem er fæddur í Southport á Englandi árið 1969, var ekki lengi að koma sér á blað í hinum enskumælandi bókmenntaheimi. Fyrsta skáldsaga hans, Ghostwritten, sem kom út árið 1999 vann til bresku John Llwellyn Rhys verðlaunanna, sem veitt eru bestu bók ársins eftir höfund yngri en 35 ára, auk þess sem skáldsagan var tilnefnd til bókmennta verð- launa breska blaðsins The Guardian. Í Ghostwritten sjást strax helstu höfundareinkenni Mitchells: Grípandi margradda texti sem fléttast saman á óvæntan hátt. Sagan hefst á japönskum hryðjuverkamanni á flótta en þegar öll sund virðast lokuð þá hringir hann í sérstakt neyðarnúmer sem honum hafði verið gefið. Næsti hluti fjallar um ástfanginn tenórsaxafónleikara sem fær dularfullt símtal og þannig fram eftir götunum. Meðal þeirra sem koma við sögu eru bankamaður í Hong Kong sem gefst upp á peningaþvætti og deyr úr sykursýki, kínversk tesölukona sem sér mannkynssöguna líða hjá í formi þeirra ólíku herflokka sem ýmist kaupa sér hressandi tebolla eða leggja í rúst kofann hennar, við rætur fjallsins heilaga Emei. Þaðan vindur sögunni til Mongólíu þar sem efnislaus andi í leit að uppruna sínum fær orðið áður en sjónarhornið færist í undirheima Sankti Pétursborgar í Rússlandi þar sem allt er í uppnámi eftir að peningaþvætti aðal-glæpaforingjans gegnum Hong Kong klikkar. Næst kynnumst við kvensömum rithöfundi í Lundúnum og síðan írskum gervigreindarfræðingi sem bandaríski herinn kúgar til samstarfs. Og þar sem hugmyndauðginni eru engin takmörk sett fjallar síðasti söguhlutinn um það þegar gervigreindarbúnaður bandaríska hersins, sem kallast Dýra- garðsvörðurinn, hringir inn í útvarpsþátt í von um að greiða úr tilvistar- flækjum sínum. Hver saga er fullkomlega sjálfstæð og áhugaverð á sinn hátt. En tengslin magna upp heildina og vekja spennusagnalegan lestrarunað þegar þau koma í ljós. Merkingin er oft takmörkuð í fyrstu en útkoman er sú að heildar- verkið er stærra en summa einstakra hluta. Áhugafólk um póstmódernisma fær mikið fyrir sinn snúð í þessari bók, eins og í öllum verkum Mitchells, en hann er einmitt sér-menntaður í faginu, skrifaði MA-ritgerð um póst- módernískar skáldsögur. Önnur skáldsaga Mitchells, number9dream, kom út árið 2001. Hún fjallar um japanskan unglingspilt í föðurleit. Í byrjun bókarinnar situr drengurinn, Eiji Myjake, fyrir utan skrifstofu lögfræðings föður síns og lætur sig dreyma í smáatriðum um ólíkar leiðir til að komast að því hver faðir hans er í raun. Aðferðirnar spanna allt frá því að ráðast með vopnum á húsið til þess að bíða eftir flóði sem mundi drekkja borginni. Loks brestur hann hugrekkið og við tekur áhugaverð saga með svo dularfullum beygjum og furðulegum sveigjum að það minnir ekki lítið á Haruki Murakami – og ekki aðeins vegna japanska sögusviðsins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.