Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 71

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 71
A n a M a r í a S h u a . M ö r g a n d l i t a r g e n t í n s k r a r s k á l d k o n u TMM 2015 · 3 71 ekki vera að skrifa um. Sagan fjallar um sjúkrahússlegu karlmanns þar sem sjúkdómurinn er nánast óskilgreindur eins og í réttarhöldum Kafka. Þessi óskilgreinda sjúkrahússlega hefur verið túlkuð með tilvísun til harðstjórnar Videla og félaga og allra þeirra bragða sem harðstjórar heimsins nota til að gefa glæpum sínum faglega réttlætingu. Ári síðar gaf Shua út smásagnasafnið Veiðidagar (Los días de la pesca, 1981). Sögurnar eru ólíkar að efni og gerð, en þær voru skrifaðar á löngu tímabili. Titilsagan vakti töluverða athygli; stúlka fer daglega í veiðiferð með pabba sínum og lýsir af nákvæmni aðferðum þeirra við veiðarnar. Má segja að sagan sýni stríðnispúkann í Shua þegar kemur að kynhlutverkum. En með næstu skáldsögu hennar, Ástir Lauritu (Los amores de Laurita, 1984), fer hún enn lengra inn á þessi mið. Þetta er erótísk saga með tilheyrandi kynferðislegum lýsingum og draumórum. Bókmenntagrein þessi hefur að jafnaði verið töluvert karllæg en Shua tekst á listfengan hátt að kvengera hana. Um leið og hún gagnrýnir eignarrétt karla á greininni tekst henni að gera hana algerlega sannfærandi út frá kvenlegu sjónarhorni. Þar setur meðal annars þungun aðalpersónu strik í hinn erótíska reikning; en ófrískar konur og kynlíf hafa jafnan þótt einhvers konar tabú. Í næstu bók sinni Syfjur (La sueñera, 1984) ræðst Shua í fjórðu bók- mennta greinina: örsögur. Fyrir þær hefur hún orðið hvað frægust enda er það örsagnaformið sem hún hefur mest dálæti á eins og oft hefur verið haft eftir henni.1 Verður vikið að örsagnaverkum hennar sérstaklega hér á eftir. Eftir Syfjur hefur Shua gefið út mjög fjölbreytilegt safn ritverka. Hún hefur alltaf haft mikinn áhuga á þjóðsögum allra landa og unnið með þær eins og þegar hefur komið fram. Hún hefur einnig unnið með margvíslegar hefðir innan gyðingdóms en þriðja skáldsaga hennar Bók minninganna (El libro de los recuerdos, 1994) fjallar um þrjár kynslóðir innflytjenda af gyðingaættum í Argentínu. Þar blandast saman hinar ólíku gyðinglegu hefðir sem standa að Shua, frá Miðausturlöndum og Austur-Evrópu. Í fjórðu skáldsögu sinni, Dauðinn sem aukaverkanir (La muerte como efecto secundario) útgefin 1997, breytir Shua um sjónarhorn og tekur fyrir áhrif íþyngjandi föðurímyndar á uppburðarlítinn son sem segir sögu sína. Bókin er á köflum sundur- lausar hugrenningar þar sem myndmál heimsslita er samofið framtíðarsýn Argentínu. Í síðustu skáldsögu sinni, Þyngd freistingar (El peso de la tentación, 2007), fer hún inn á svið útlitsdýrkunar og offituvanda nútímans. Eins og sjá má fjallar Shua um hin fjölbreytilegustu efni, allt frá móður- hlutverki og brjóstagjöf til heimspekilegra álitamála. Sama er að segja um smásögur hennar. Auk fyrrnefnds safns, Veiðidagar, hefur hún sent frá sér Á ferðalögum kynnist maður fólki (Viajando se conoce gente) sem út kom 1988 og Eins og góðri móður sæmir (Como una buena madre, 2001). Árið 2009 kom úrval smásagna úr fyrri bókum ásamt nokkrum óútgefnum sögum undir titlinum Megirðu eiga áhugaverða ævi (Que tengas una vida interesante) og tveimur árum síðar gaf spænskt forlag út úrval smásagna
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.