Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 74
74 TMM 2015 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
Árið 2009 var fjórum fyrrnefndum bókum safnað saman og þær gefnar
út undir titlinum Veiðimenn bókstafa (Cazadores de letras). Síðasta bók Shua
með örsögum kom út árið 2011, Fyrirbæri úr fjölleikahúsi (Fenómenos del
circo) og hefur að geyma 137 sögur. Þær snúast allar um lífið í fjölleika-
húsinu og sögu þess: listamennina, dýrin, skrímsli, viðundur og ýmis furðu-
fyrirbæri þar sem margar sögulegar persónur skjóta upp kollinum.
Líta mætti á þetta verk sem eins konar sagnasveig og jafnvel einnig
Syfjur. Nokkrar bækur með örsögum þessa eðlis hafa verið skrifaðar af höf-
undum frá Rómönsku Ameríku, svo sem Haugfé (Ajuar funerario, 2004)
eftir Fernando Iwasaki (1961) frá Perú, sem allar tengjast dauðanum á einn
eða annan hátt, Fótbolti í sól og skugga (El fútbol a sol y sombra, 1995) eftir
Úrúgvæmanninn Eduardo Galeano (1940–2015) um fótbolta, og ef því er að
skipta stórverkið Minningar um eld (Memorias del fuego) eftir sama höfund,
þrjú bindi (sem út komu 1982, 1984 og 1986) með stuttum textum – örsögum
sem spanna sögu Ameríku frá tímum frumbyggja til nútímans.
Shua hefur stundum verið nefnd drottning örsagna og helsti arftaki
Augustos Monterroso; það er ekki lítil viðurkenning í ljósi þess að margir
af frumlegustu höfundum álfunnar hafa fengist við stutta prósatexta af ein-
hverju tagi, ekki síst landar hennar sem voru nefndir hér í upphafi.
Barna- og unglingabækur Shua skipta tugum og kom sú fyrsta út 1988.
Bækur hennar með endursögnum á ævintýrum og þjóðsögum eru orðnar
margar talsins, hátt í tuttugu. Aðspurð hvers vegna þjóðsagnaarfurinn sé
henni svo mikilvægur svarar hún: „Einfaldlega vegna þess að þjóðsögur eru
bestu sögur í heimi.“3
Shua er margverðlaunaður höfundur, bæði innanlands sem utan. Síðustu
verðlaunin hlaut hún árið 2014 fyrir smáprósa sína og smásögur. Það voru
Þjóðarverðlaun Argentínu og Konex de Platino verðlaunin. Verk hennar hafa
verið þýdd á fjölda tungumála. Bæði smásögur hennar og örsögur hafa birst
í safnverkum á mörgum tungumálum.
Tilvísanir
1 Dahl Buchanan, Rhonda. „Entrevista con Ana María Shua“. Í El río de los sueños. Aproxi-
maciones críticas a la obra de Ana María Shua. AICD (Agencia Interamaricana para la Cooper-
ación y el Desarrollo), Washington, D.C., 2001, bls. 308, 313.
2 Sama verk, bls. 320.
3 Sama verk, bls. 318.