Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Blaðsíða 82
82 TMM 2015 · 3
B ó k m e n n t a h á t í ð
öll mannréttindabrot þess eðlis að þau græti fólk yfir fréttaannálnum á
gamlárs dag. Góðgerðarsamtökin The Teacher Salary Project spruttu, eins
og svo mörg góðgerðarsamtök, upp úr bók eftir Eggers 7, Teachers Have It
Easy: The Big Sacrifices and Small Salaries of America’s Teacher sem kom út
árið 2005. Samtökin beina sjónum sínum að slæmum aðbúnaði og launa-
kjörum kennara, sem þau telja helsta orsakavald lakra gæða menntunar í
almenna skólakerfinu í Bandaríkjunum. Auk þess að vera einn stjórnenda
samtakanna framleiddi Eggers einnig heimildarmyndina American Teacher
fyrir þau árið 2011.
Einn helsti styrkleiki Eggers er hversu vel hann nær að hrífa fólk með sér.
Hann er einlægur jafnt í skrifum sínum og gjörðum og engum dylst ástríða
hans fyrir réttlátara samfélagi. Að öllum öðrum málefnum ólöstuðum er
framlag hans til barnamenningar og menntunar ómetanlegt. Tugþúsundir
barna geta þakkað honum, og því góða fólki sem hann safnar sér við hlið, að
á rödd þeirra er hlustað. Strax í upphafi fékk hann þekkta rithöfunda á borð
við Isabel Allende, Amy Tan og Khaleid Hosseini til að ritstýra og/eða skrifa
formála að ritverkum krakkanna sem sóttu 826 Valencia og í dag er orðspor
þeirra slíkt að stórstjörnur keppast um að taka þátt í verkefnum sem styðja
við bakið á starfsemi samtakanna.
Í eina öld hefur Houghton Mifflin bókaútgáfan gefið út The Best American
ritröðina sem eru árleg safnrit ljóða, smásagna og annarra bókmenntagreina.
Þegar leitað var til Eggers árið 2002 um að ritstýra nýrri seríu fyrir yngri
lesendur, The Best American Nonrequired Reading, þá leitaði hann eðlilega
áfram á náðir þessara yngri lesenda og kom á fót valnefnd 22 gagnfræða- og
framhaldsskólanema sem hittu hann á vikulegum ritstjórnarfundum og
völdu efnið í samráði við hann. Þann háttinn hefur hann haft á síðan og
þegar Lemony Snicket tók við ritstjórnarkeflinu árið 2014 varð engin breyt-
ing á enda nemendurnir margbúnir að sanna að þeir væru ekki síðri en
nokkur annar til verksins.
Smá frásögn til að brjóta upp greinina8
Eggers er duglegur að heimsækja skóla víða um Bandaríkin til að breiða út
fagnaðarerindið um að lykillinn að bættum heimi séu hamingjusöm sam-
félög, sem verða meðal annars til vegna hamingjusamra barna. Í einni slíkri
heimsókn í grunnskóla í Detroit hlustaði hann á 6 – 10 ára börn segja sögur
sem þau höfðu samið í söguklúbbi eftir skóla. Eggers fannst sögurnar svo
skemmtilegar að hann fékk þær útprentaðar til að lesa fyrir fjölskylduna
sína. Honum fannst sögurnar eiga erindi til stærri lesendahóps og því ákvað
hann að hjálpa börnunum að gefa sögurnar út og síðastliðið haust kom út
bókin Where Is It Coming From?, myndskreytt af Dave Eggers.