Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 84

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2015, Side 84
84 TMM 2015 · 3 Gauti Kristmannsson Nígeríubréf frá New York Við Íslendingar höfum lengi átt mikil og góð samskipti við Nígeríu þótt þau hafi verið mjög einhliða alla tíð. Alveg frá 1951 hafa Nígeríubúar keypt af okkur skreið og annan fisk og nú síðast er makrílmarkaðurinn orðinn afar mikilvægur.1 Með tilkomu Netsins tók svo að bera á svokölluðum „Nígeríubréfum“, sem svo voru kölluð, frá einhverjum svindlurum sem reyndu að lokka upplýsingar út úr fólki og voru vitaskuld ekkert endilega frá Nígeríu þótt slík bréf hafi fengið þann stimpil sem hluti fyrir heild. Við vitum almennt ósköp lítið um þetta stóra viðskiptaland okkar, sem er fjölmennasta ríki Afríku, með á að giska 175 milljónir íbúa og á sér aldagamla menningu meðal þeirra fjöl- mörgu þjóða sem landið byggja, en Nígería hefur verið sjálfstætt þjóðríki frá 1960 eftir að landið losnaði af nýlenduklafa Breta. Nígerískar bókmenntir hafa heldur ekki verið áberandi í íslenskri bók- mennta umræðu, hvað þá útgáfu, og það þótt Wole Soyinka hafi fyrstur Afríku búa hlotið Nóbelsverðlaunin árið 1986, en eftir hann hefur birst eitt ljóð í þýðingu Baldurs Óskarssonar og ein grein um hann eftir Sigurð A. Magnússon ef marka má skráningar í gegnir.is. Sama má segja um aðra höf- unda á borð við Chinua Achebe, Daniel O. Fagunwa, Femi Osofisan, Ken Saro-Wiwa, Cyprian Ekwensi, Buchi Emecheta, Elechi Amadi og Ben Okri svo aðeins kunnustu nöfnin séu nefnd. Vonandi verður breyting þar á bráðum. Ein nýjasta stjarnan á himni nígerískra bókmennta er Teju Cole sem birt hefur eina nóvellu Every Day is for the Thief (2007) og eina skáldsögu Open City (2011). Hann fæddist 1975 í Bandaríkjunum, barn nígerískra foreldra sem fluttu skömmu síðar til Lagos þar sem hann ólst upp til sautján ára aldurs er hann flutti aftur til Banda- ríkjanna. Cole er einnig ljósmyndari og listfræðingur, auk þess sem hann hefur skrifað pistla í blöð og tímarit. Bækur hans hafa vakið mikla athygli, ekki síst Open City sem hlaut Hemingway Foundation/PEN verðlaunin, sem reyndar eru veitt bandarískum höfundum. Bækur hans hafa einnig hlotið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.